Þ að er mögulega hægt að spara nokkrar upphæðir ef hver sá sem ætlar að bóka flug fyrir fjölskyldu, par eða vinahóp byrjar á því að leita að fargjaldi fyrir aðeins eina persónu.

Oft verður að vera á tánum til að njóta bestu kjara í flugi og ferðum.
Það kann að hljóma eins og tímaeyðsla að leita að flugi fyrir einn þegar ætlunin er að bóka fyrir fjóra til dæmis en það er góð ástæða til þess arna.
Hún sú að flugfélög flest hver takmarka fjölda flugsæta í lægsta verðflokki hverju sinni. Það virkar þannig að ef til dæmis aðeins eru þrjú sæti eftir á lægsta verði í ákveðnu flugi og einhver leitar að flugi fyrir fjóra þá kemur lægsta verð alls ekki upp. Þá fær viðkomandi bara fjóra miða í næsta verðklassa fyrir ofan.
Segjum sem svo að einhver sé á leið til London. Sá finnur fargjald fyrir einn á 20 þúsund krónur. Í kjölfarið leitar hann að sama flugi fyrir fjóra og ef næg sæti eru eftir á lægsta verði ætti verðmiðinn fyrir alla fjóra að vera 4 sinnum 20 þúsund eða áttatíu þúsund samtals. Ef verðið fyrir fjóra er hærra en þetta er orðið ljóst að sæti á lægsta verðinu eru uppseld.
Þá er ráð að leita fyrir þrjá og svo tvo þangað til 20 þúsund króna fargjaldið er fundið fyrir alla og bóka það fyrir þann fjölda sem hægt er. Strax á eftir eru svo bókuð þau sæti til viðbótar sem þörf er á og þau væntanlega eitthvað dýrari.
Aðeins með þessum hætti er tryggt að þú greiðir allra lægsta fargjald sem í boði er hverju sinni. Sum flugfélög hafa þann háttinn á að upplýsa hversu mörg sæti eru eftir á lægsta auglýsta fargjaldi en það er ekki algilt og reynslan sýnir reyndar líka að það er ekkert endilega að marka þær upplýsingar.
Þegar verðmunur á allra lægsta fargjaldi og næsta fyrir ofan rokkar frá nokkur hundruð krónum og jafnvel upp í tugþúsundir er þetta sannarlega leið til að spara skildinginn á ferðalagi. Þjóðráð ekki satt?




