M argir hræðast flugferðir. Sumir út af almennri lofthræðslu, sumir út af áköfum ótta við návist við ókunnuga en svo eru margir sem óttast flugferðir út af öllum þeim vírusum og vibbum sem fljóta frjálslega um í lokuðu stálhylki í 40 þúsund feta hæð.

Kófið hefur gert illt verra en ýmis konar óþverri finnst í andrúmsloftinu í farþegavélum.

Eftir Elísabetu Gunnarsdóttur

Mig langar fyrst að nefna að þó þetta virki fyrir mig, eða að ég telji þetta virka fyrir mig, þá eru vísindin beggja blands hvort engifer hjálpar raunverulega að forðast bakteríur, sýkla eða einhverju þaðan af verra. En mér finnst það virka og hef notað það í flugferðum um tíu ára skeið.

Samkvæmt mörgum vísindalegum rannsóknum eru tiltekin efni í engifer sem annaðhvort stoppa eða vinna duglega mót 50 mismunandi bakteríum í líkamanum. Hrár laukur er enn betri lausn gegn ýmsum vibbum en ólíkt engifer er hrár laukur ekkert sérstaklega góður á bragðið. Þvert á móti eiginlega og lyktin er enn minna spes 🙂

Ég man ekki hvaða grein ég las sem sannfærði mig á sínum tíma en allar götur síðan hef ég haft fyrir venju að skera niður engiferkubb í frumeindir áður en ég fer í flug. Set í plastpoka og þann poka í handfarangurinn. Tek upp pokann þegar flugið er hafið og bið flugþjóna um heitt vatn. Fæ það yfirleitt og set þá skorna engiferbitana ofan í bollann og drekk það hægt og sígandi alla leiðina.

Svo þegar líður á flugið panta ég gjarnan gott viskí og set þá aftur engiferbita ofan í. Þannig ímynda ég mér að bæði alkóhólið og engiferbitarnir vinni mót hverri þeirri óværu sem ég gæti verið að anda ofan í mig á flugi. Og viskí plús engifer er bara ótrúlega góð blanda finnst mér.

Þetta hefur virkað fyrir mig hingað til. Ég aldrei orðið flugþreytt eins og það er kallað né heldur orðið lasin eftir flugferð svo ég muni til. En það er bara ég. Kannski er þetta bara ímyndun í mér en ef mér finnst það virka þá nota ég þetta áfram 🙂