Fyrir okkur þarna úti sem kjósum fyrst og fremst að skipuleggja ferðalögin okkar sjálf getur nokkur vandi verið á höndum. Úrvalið er það mikið og fjölbreytt að valkvíði sækir að eftir fimm mínútur í þokkabót við að upplýsingar eru oft misvísandi og stundum beinlínis rangar.

Fimmtíu og þrír dagar er lykilatriði ætli fólk að verða sér úti um allra lægsta flugfarið út í heim. Mynd Momondo
Vestanhafs hafa stærri miðlar fjallað nokkuð um hvaða dag sé ódýrast að bóka eða kaupa flugmiða en þar hafa menn reiknað út að þar megi spara nokkrar upphæðir sé slegið til á sunnudögum fram yfir aðra daga. Reyndar hafa sérfræðingar dregið þetta í efa, ekkert sé fast í hendi með að lægstu fargjöld finnist akkurat þann dag en ekki aðra.
Þar er auðvitað aðeins verið að taka til bandarískra flugfélaga og ferðaskrifstofa en það er flóknara að gera sér grein fyrir hvort þetta skiptir einhverju máli í Evrópu og hvað þá hér á Íslandi.
Einn miðill sem Fararheill hefur afar góða reynslu af, danska flugleitarvélin Momondo, telur sig þó hafa komist að því hvaða þrjár leiðir sé færar til að spara skilding á utanlandsferðum. Þar byggja Danirnir á upplýsingum úr viðamiklu flugbókunarkerfi sínu og eru líklega ekki að fara með fleipur þó auðvitað sé þeir að ota sínum tota.
Spara má drjúgan skilding með þessum leiðum:
- Lægst verð heilt yfir í flugi finnst 53 dögum fyrir brottför. Momondo reiknar út að með þeim ákveðna fyrirvara fáist flugfar á 29 prósent lægra verði en daginn fyrir brottför þegar flug er dýrast.
- Það er ódýrast að fljúga á þriðjudögum en dýrast á laugardögum. Meðalmunur á flugfargjöldum á þessum tveimur dögum vikunnar 13 prósent.
- Kvöldflug er nánast undantekningarlaust ódýrara en dagflug. Það er reyndar nokkuð sem við eigum lítinn kost á hér því oftar en ekki er kvöld eða næturflug það eina í boði í skipulögðum ferðum. Danirnir segja að 6 prósent ódýrara sé að bóka kvöldflug en hitt.
Sé allt saman tekið; keypt með 53 daga fyrirvara, flogið á þriðjudegi heim og aftur og að kvöldi til í bæði skipti má því finna lægsta mögulega almenna flugfargjald og spara allnokkra þúsundkalla. Sakar ekki að láta á reyna.







