H ún er til skiptis kölluð stærsta útihátíð heims eða stærsta kúrekahátíð heims en hvort heldur sem er mega gestir í Calgary í Kanada eiga von á húllumhæi víðs vegar um þá ágætu borg þegar Calgary Ringulreiðin, Calgary Stampede, stendur yfir.

Kúrekar í þúsundavís finnast í Calgary yfir Stampede hátíðina í júlí ár hvert. Mynd Anna_Webber

Kúrekar í þúsundavís finnast í Calgary yfir Stampede hátíðina í júlí ár hvert. Mynd Anna_Webber

Hátíðin er mekka allra sem gaman hafa af kúrekum og gjörðum þeirra ágætu manna og miðað við fjölda gesta ár hvert og stærð hátíðarinnar er enginn skortur á slíku fólki í heiminum.

Fyrir utan hefðbundin tól, tæki og skemmtanir sem finna má á öllum stærri útihátíðum eins og tívolí, skrúðgöngur, útimarkað og annað slíkt er hér keppt í öllu mögulegu sem kúrekum tengist. Hér er stærsta og fjölmennasta ródeókeppni í heiminum. Hér fer einnig fram kerrukeppi með rómversku sniði.

Ekki nóg með það heldur mætir hingað fjöldi bænda með varning sinn og selur hér. Þá eru ekki síðri smærri keppnir víða um borgina í pönnukökubakstri og grillmeistarar geta hér att kappi sín á milli.

Sýningar eru fjölmargar á meðan á Ringulreiðinni stendur af ýmsu tagi. Hér mæta innfæddir indjánar og sýna siði sína og gripi. Þá eru hér tónleikar ýmsir fyrir alla aldurshópa. Síðast en ekki síst sést hér varla sála á ferli án gamaldags gallabuxna og að sjálfsögðu kúrekastígvéla. Þá þykja karlmenn  plebbar hinir mestu ef ekki er kúrekahattur á höfði.

Ringulreiðin stendur árlega í tíu daga og fer ávallt fram í júlí. Meðan gaman er að valsa um borgina þegar hátíðin stendur yfir er ráð að panta gistingu í tíma og sé áhugi að sjá ródeóið eða önnur stærri atriði skulu miðar einnig keyptir með góðum fyrirvara. Það er hægt að gera á netinu á heimasíðu hátíðarinnar hér. Gæta skal að því að hitar í Calgary í júlí eru töluverðir og ekki allir sem hafa mikið úthald í þeim hitum.

Til umhugsunar: Icelandair flýgur beint til þriggja kanadískra borga en illu heilli engin þeirra nálægt Calgary. Það er hins vegar tiltölulega ódýrt að fljúga innanlands í Kanada ólíkt því sem gerist hérlendis. Frá Toronto er komist fram og aftur til Calgary þegar þetta er skrifað fyrir rúma 25 þúsund krónur eða svo.