Þ að þurfa ekki öll ferðalög að kosta skildinginn. Sérstaklega ekki sé fólk reiðubúið að leggja örlítið aukalega á sig má kynnast ýmsu merkilegu án þess að greiða fyrir mikið annað en flug til og frá.

Það bætir og kætir anda að vinna í sjálfboðastarfi erlendis um tíma að sögn velflestra sem slíkt hafa reynt.
Sjálfboðaliðastörf hvers konar njóta vaxandi vinsælda og þá sérstaklega meðal unga fólksins. Óhætt væri kannski að draga þá ályktun að versnandi efnahagur fjölskyldna um víða veröld hefði þar eitthvað að segja en það væri rangt. Stígandi hefur verið í slíkum störfum meira og minna um 20 ára skeið.
Mörg fyrirtæki sérhæfa sig í sjálfboðaliðastörfum en flest þeirra taka einhvers konar gjald fyrir og á stundum mjög hátt gjald.
Það á ekki við um hópa eins og þann sem rekur HelpX miðilinn en þeim vef er ætlað að vera beinn og óháður milliliður milli þeirra sem hjálp vantar og þeirra sem sýna áhuga að vinna frítt gegn því að kynnast erlendu landi og þjóð.
Þar má gegn tiltölulega vægu fjögur þúsund króna gjaldi fá upplýsingar um þúsundir aðila sem óska eftir aðstoð tímabundið í hinum ýmsu löndum heims. Oftar en ekki um auðveld og stundum skemmtileg störf að ræða og það jafnan í skamman tíma eða 4-6 klukkustundir á dag. Sem vitaskuld gefur áhugasömum góðan tíma aflögu til að spóka sig um í nýju umhverfi, læra nýtt tungumál eða einfaldlega brjóta niður þægindarammann sem er ekkert annað en hægfara dauði.
Frábær leið til að skoða heiminn þó tómlegt sé um að litast á bankabókinni. HelpX hér.




