
Ef þú þorir að aka um í erlendu landi er fátt betra en að leigja húsbíl og ef fleiri en tveir eru um hituna er kostnaðurinn djók og upplifunin minnistæðari en öll hótelgisting.
Með góðum fyrirvara má leigja fínan húsbíl í viku í Frakklandi eða Þýskalandi allt niður í 70 þúsund krónur að sumarlagi. Vestanhafs í Kanada eða Bandaríkjunum má sömuleiðis víða finna húsbíla niður í 80 til 90 þúsund krónur á vinsælum tímum en aftur aðeins ef bókað er með drjúgum fyrirvara. Leiga hækkar mjög ört eftir því sem nær dregur.
Vissulega aðeins lægra verð en þú greiðir hér heima í landi græðgi og gróða en nett leit leiðir í ljós að vikustund á húsbíl hér heimavið um miðjan september kostar að lágmarki 270 þúsund krónur!!! Bara 200 prósent hærra verð en vestan- og austanhafs.
Að því sögðu er ráðlegt að skoða allt smátt letur í leigusamningum í þaula áður en bíll er bókaður eða skrifað er undir nokkurt plagg.
Ekki aðeins er mikill munur á því sem innifalið er í húsbílaleigu í Bandaríkjunum annars vegar og Evrópu hins vegar heldur er líka mikill munur á hvert þú mátt aka húsbíl, hversu lengi dags eða hversu marga kílómetra. Víða má finna sallafín tilboð en smáa letrið leiðir í ljós að í þeim tilboðum er ALLS ENGINN AKSTUR INNIFALINN eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti. Það er því kominn aukakostnaður um leið og þú ekur útaf bílastæðinu hjá leigusala.
Ekki nóg með það. Kaninn bætir gjarnan alls kyns þvælu ofan á prísinn en lætur þig ekki vita fyrr en þú skilar druslunni og reikningurinn töluvert hærri en þú reiknaðir með. Eða hvers vegna borga aukalega fyrir „Kitchen Kit” eða „Vehicle Preperation” eins og líka má sjá á meðfylgjandi skjáskoti frá vinsælli húsbílaleigu. Kitchen Kit merkir hnífapör og diskar og Vehicle Preparation þýðir að bíllinn er tilbúinn þegar þú leigir tíkina. Ekta Kaninn að setja aukagjöld á sjálfsagða hluti en það kostar þig extra nema þú rýnir í smáa letrið strax við leigu í upphafi.
Hlutirnir almennt miklu betri í Evrópu. Þar finnur enginn Kitchen Kit eða Vehicle Preparation aukagjöld ofan á leiguverðið en það geta komið til aukagjöld ef þú ferð yfir landamæri plús auðvitað að ekki er allar húsbílaleigur jafn heiðarlegar eins og gerist.
Og svo framvegis og svo framvegis. Hér sex atriði sem þú ættir að spyrja út í ÁÐUR en þú leigir húsbíl:
Hver er ábyrgð leigutakans? Þarf viðkomandi að greiða fyrir sprungið dekk svo dæmi sé tekið eða er slíkt dekkað í samningnum?En svona fyrir okkur hin sem viljum bara lungnamjúka dýnu og sængurföt frá Dolce & Gabbana strax eftir að við skráum okkur inn er óvitlaust að kíkja á ÁTTFALDAN heimsmeistara í hótelbókunum hér að neðan 🙂




