Sterkar líkur benda til þess að einn merkasti sjáandi síðari tíma starfi hjá Wow Air Skúla Mogensen. Annaðhvort það eða flugfélagið bullar út í eitt gagnvart viðskiptavinum.

Örlög Primera Air ráðin og öllum hollt að minnast þess að Wow Air var á nippinu að fara sömu leiðina fyrir ekki svo löngu síðan. Í bæði skiptin var græðgi og kjánaskap um að kenna. Eða hvaða hugsandi forstjóri fyrirtækis í rekstri býst við húrrandi uppsveiflu í einu og öllu 365 daga á ári til eilífðarnóns?

Sök sér að vakna upp einn daginn með allt niðrum sig og þurfa að rifa seglin í rekstrinum í hvínandi hvelli eins og raunin hefur verið hjá herra Mogensen síðustu vikurnar. Töluvert verra að afsaka ruglið með bulli og vitleysu.

Eins og sést á meðfylgjandi skjáskotum af Twitter virðist „þjónustuver” Wow Air benda viðskiptavinum á að tilteknar flugferðir falli niður sökum aftakaveðurs.

Sem í sjálfu sér er ekki ólíkleg skýring ef ekki væri um að ræða flugferðir mánuði fram í tímann!!!

Hvað veldur því að súrum viðskiptavinum Wow Air er tjáð að flugferðum sem felldar hafa verið með öllu niður í vetur sökum skipulagsbreytinga voru felldar niður vegna veðurs mánuði fram í tímann skal ósagt látið. En engum blöðum um að fletta að það er einhver ömurlegasta þjónusta sem fyrirfinnst undir sólinni…