L istunnendur eða skítblankir einstaklingar sem langar í húsaskjól oggustund geta samgleðst minnst einn dag í september ár hvert þegar fjölmörg söfn Bandaríkjanna opna dyr sínar og bjóða frían aðgang.

Mikill fjöldi safna bjóða frían aðgang í september ár hvert vestanhafs. Nánari lista er að finna á vef Smithsonian.
Safnadagurinn, Museum day, er heitið og er átak þetta fyrir atbeina Smithsonian safnsins sem í samkrulli við fjölda virta og ekki svo virtra safna víðs vegar í landinu býður þeim er vilja skoða söfn en hafa einhverra hluta vegna ekki tíma eða fjármuni til að koma frítt í helstu söfn landsins þennan eina dag ársins.
Um töluverða fjármuni getur að ræða í stærri borgum þar sem mörg söfn sem venjulega heimta drjúgan skilding í aðgangseyri taka þátt en nákvæman lista yfir þau söfn sem þetta bjóða er á heimasíðu Smithsonian.
Þarf þó þar að óska sérstaklega eftir miða og fá hann sendan gegnum tölvupóst og framvísa þeim miða á þeim söfnum er til stendur að heimsækja.
Engu að síður ákjósanleg leið til að eyða góðum degi í bandarískri stórborg ef svo hittir á að Safnadagurinn dettur inn meðan fólk er á ferð vestanhafs.




