F erðaskrifstofan Heimsferðir býður þessi dægrin hreint ágætar beinar flugferðir til Veróna á Ítalíu og það á barasta fínu verði líka.

Ágæt tilboð Heimsferða en vænna þó að vita

Það má glögglega sjá á meðfylgjandi auglýsingu frá Heimsferðum. Þar auglýst fram og aftur fyrir tæpar 40 þúsund krónur og aðra leiðina niður í 19.950 krónur. Reyndar eingöngu handfarangur meðferðis en verðið gott fyrir því.

Veróna er ein af þessum stórkostlegu gömlu borgum Ítalíu og gnótt að sjá og upplifa. Þar „gerðist“ og frægasta ástarsaga veraldar, Rómeó og Júlía William Shakespeare.

Þjóðráð að grípa gæsina atarna og vitna aðra borg í beinni en þessar venjulegu á Ítalíu. Extra plús í kladdann að forráðamenn Heimsferða virðast ekki vita að hægt er að komast á enn lægra verði til Veróna en þeir gefa í skyn eins og sjá má á næsta skjáskoti af vef Heimsferða. Þar fæst önnur leiðin út niður í 14.900 krónur 🙂