Þ ýska borgin Stuttgart hefur hingað til ekki verið meðal heitustu áfangastaða ferðalanga í því ágæta landi. Íslendingar þekkja borgina þó vel að hluta til ábyggilega vegna afreka Ásgeirs Sigurvinssonar í knattspyrnunni á sínum tíma.
Nú er hins vegar nýlegt safn farið að trekkja allverulega að og kannski ekki furða. Porsche safnið þykir eitt það allra merkilegasta og ekki aðeins fyrir þá 80 glæsibíla sem þar má sjá innandyra heldur er byggingin sjálf mjög merkileg og minnir helst á framandi geimskip.
En Ferdinand Porsche smíðaði ekki einungis bifreiðar heldur má á safninu finna Porsche traktor meðal annars og til eru líka skriðdrekar með nafni Porsche. Sögu Ferdinands er einnig gerð góð skil hér innandyra.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 9 – 18. Aðgangseyrir 1.600 krónur fyrir fullorðna.





