Kensal Green hefur, eins og fyrirmyndin í París, orðið sífellt vinsælli meðal ferðamanna sem vilja sjá grafreiti og grafhýsi þekktra eða frægra einstaklinga sem horfið hafa yfir móðuna miklu.
Af þeim er kappnóg í Kensal Green allt frá fornstjörnum á borð við milljarðamæringinn Isambard Kingdom Brunel, leikritahöfundinn Harold Pinter, skáldið JG Ballard og upp í minnismerki um Freddie Mercury fyrrum söngvara Queen. Ekki er reyndar gröf Mercury hér enda lét hann brenna sig og dreifa öskunni í Sviss en hér er allavega eina minnismerkið um hann í kirkjugarði.
Kensal Green hefur sömuleiðis, eins og forverinn hinu megin Ermasundsins, orðið sífellt vinsælli fyrir gönguferðir íbúa í grenndinni enda garðurinn bæði stór og gróinn og kjörinn fyrir andlega íhugun svona á töltinu.
Hann jafnast þó ekki á við allra frægasta kirkjugarð London, Highgate, í norðurhluta borgarinnar. Þar liggja í heildina um 170 þúsund manns hinstu hvílu og töluverður fjöldi þeirra þekktir eða frægir einstaklingar. Dæmi um það eru Charles Dickens, Isaac Newton og Karl Marx svo fáir séu nefndir.
View Frægir kirkjugarðar í London in a larger map





