Hundrað og tuttugu dagar síðan forsvarsmenn „flugfélagsins” Play héldu partí og tilkynntu um stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags. Síðan þá hefur frést meira af Geirfinni en Play.

Hér kannski komin ein ástæða þess að Wow Air fór yfir um. Helstu forsvarsmenn þess, og nú Play, vissu ekkert hvað þeir voru að gera.

Engar fréttir eru góðar fréttir segir erlent orðatiltæki og þar vísað til þess að ef manneskja eða fyrirtæki eru ekki í fjölmiðlum eða milli tanna á fólki lon og don þá er allt með felldu.

Sem er auðvitað tómt kjaftæði því bæði fólk, fyrirtæki og stjórnvöld eyða fúlgum fjár, og stundum alvarlegri aðferðum, til að koma í veg fyrir að slæmt stöff sleppi út í algleymið.

Að því sögðu er það kjánaskapur dauðans fyrir forsvarsmenn Play að hoppa, húrrast og knúsa hvorn annan á stóra sviðinu í Hörpu í byrjun nóvember á síðasta ári þegar tilkynnt var um nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag. Ekki bara það; í kjölfarið var haldið megapartí í Bláa lóninu.

Jamms, það er eiginlega meira en kjánaháttur. Það er beinlínis fíflaháttur þegar haft er hugfast að forsprakkarnir voru ekki með krónu í vasanum umfram það sem húllumhæið kostaði. Allavega ekki miðað við að síðan þá hefur ekki heyrst múkk frá þessum skemmtilegu forsvarsmönnum. Sé tekið mið af því að allir forsvarsmenn Play voru háttsettir hjá Wow Air Mogensen má draga ályktanir um að þessir forsvarsmenn hafi kannski ekki alveg verið með þetta sem til þarf þrátt fyrir speki og fræði.

Var Play bara innihaldslaus gjörningur?

Arnar Már Magnússon, Sveinn Ingi Steinþórsson, Daníel Snæbjörnsson, Jónína Guðmundsdóttir og Sonja Arnórsdóttir voru meðal þeirra sem kynntu Play sem nýtt íslenskt flugfélag í byrjun nóvember á síðasta ári. Mánuði síðar var fjármögnun í höfn samkvæmt yfirlýsingum og í byrjun desember 2019 átti brátt að hefja miðasölu. Fyrsta rella Play færi í loftið á nýju ári.

Það var þá.

Forsprakkar Play ekki beint gengið hægt um gleðinnar dyr en ekki er öll nótt úti þrátt fyrir það. Skjáskot

Nú líður að lokum febrúar 2020 og enn bólar ekkert á nýjum tilkynningum, vefsíða Play ennþá verk í smíðum og alls engar fregnir um að fjármögnun sé lokið þó tilkynnt hafi verið í desember síðastliðnum að slíkt væri á lokametrum.

Er tíminn að renna Play úr greipum?

Viðskiptablaðið birti fyrir skömmu grein þess efnis að ef forsvarsmönnum Play væri alvara væri fyrirtækið á nippinu að hefja starfsemi. Það er jú skammt í vor og sumar sem eru bestu mánuðir ársins fyrir flugfélög og flest fólk þarf jú að bóka með nokkrum fyrirvara til að allt gangi upp.

Við hér ekki alveg sammála þeirri greiningu. Samkvæmt upplýsingum ætlar Play að hefja rekstur með tvær rellur og brúka þær á vinsælustu flugleiðum til Köben og London. Með tilliti til þess að flugfargjöld til og frá landinu hefur hækkað um 20-40 prósent síðan Wow Air dó drottni leikur enginn vafi á að innkoma Play, að því gefnu að fargjöld verði á súperverði, steinliggur.

Með tvær rellur þarf flugfélagið ekki einu sinni á erlendu ferðafólki á leið til Íslands að halda. Íslendingar sjálfir fylla þær vélar á augabragði meðan verðlag er undir því sem nú er raunin og sæti og þjónusta eiga ekkert skylt við gúlagið í Síberíu.

Trixið er að fargjöld Play séu á pari við það sem Wow Air bauð reglulega. Tuttugu til þrjátíu þúsund fram og aftur til Evrópu og þetta 30 til 40 þúsund vestur um haf og heim aftur. Strax þannig er Play að bjóða betur en Icelandair gerir nú.

Út með London og Köben

Play þarf hins vegar að gjörbreyta áfangastöðunum og vera sveigjanlegri en gefið hefur verið til kynna hingað til. Play ætti að bjóða beint flug til Alicante annars vegar og Tenerife eða Kanarí (Gran Canaria) hins vegar (þrátt fyrir kórónavírusinn.)

Með þeim hætti fylla þeir vélar sínar á augabragði í stað þess að keppa við Icelandair og fleiri aðila til London eða Parísar. Eða hvers vegna hafa flugfargjöld til Kanaríeyja hækkað um 40 prósent á einu ári og hvers vegna er hver einasta rella Norwegian til Alicante svo troðin að ekki fæst flug þangað undir 50 þúsund krónum langt fram á næsta vetur án þess að hafa svo mikið sem tannbursta meðferðis?

Vonum það besta

Forsprakkar Play í besta falli kjánar og í versta falli vitleysingar á þessu stigi málsins. En það er góð leið þrátt fyrir allt til að breyta því til batnaðar ef það næst að fjármagna klabbið. Bjóða lægri fargjöld til vinsælla áfangastaða, sætta sig við lægra ábata um tíma til að ná áttum og hlutdeild á markaði og þá fara að huga að sex vélum eins og upphafleg plön gera ráð fyrir. Með aðeins tveimur vélum á vinsæla áfangastaði þarf enga erlenda ferðamenn. Íslendingar fylla þær vélar fram og aftur.

Vonandi sjá forsprakkar að sér. Þetta er vel hægt og er auðveldara en margur heldur 🙂