V itiborið fólk veit hversu kjánalegt það er að taka með sér kaffi til Kólombíu. Færri vita að hið sama við um aloe vera sé fólk á leið til eyja karabíska hafsins.

Aloe Vera planta í garði í Aruba. Mynd Forest Starr
Vissulega kostar dolla af góðu aloe vera geli engin ósköp út í næstu verslun. En oftar en ekki á vesturlöndum eru viðbætt efni sett með til að drýgja og hafa sem mest upp úr hlutunum. Gildir næstum einu hvaða merki er þar um að ræða, næstum engar aloe vera vörur í verslunum eru 100% þrátt fyrir fögur orð og merkingar. Og þar sem víða er lítið sem ekkert eftirlit með slíkum vörum getur alls kyns viðbjóður flotið með í dollunni.
Mun sniðugra, heilsusamlegra og langtum ódýrara er að fá næsta heimamann á einhverjum af eyjunum í Karíbahafi til að græja laufblað eða tvö fyrir þig. Aloe Vera plöntur vaxa nefninlega villtar mjög víða á eyjum Karíbahafs jafnvel þó plantan sé ekki upprunalega héðan heldur frá norðurhluta Afríku.
Fullvaxin Aloe Vera planta verður þokkalega stór og eitt einasta laufblað af slíkri jurt dugar pari eða hjónum auðveldlega til kælingar í heila viku. Og ekkert er náttúrulegra en fá afskorið eitt eða tvö laufblöð og kreista svo úr ferskt gelið eftir þörfum.
Þetta hafa ritstjórnarmeðlimir gert á Kúbu, Jamaíka og Tóbagó með 100 prósent árangri. Hálf klukkustund er það lengsta sem við biðum eftir nokkrum blöðum og kostnaðurinn taldi tæplega hundrað krónur í hvert sinn auk kynna við hina forvitnilegustu heimamenn 😉
Og auðvitað gefurðu viðkomandi nokkra hundraðkalla fyrir viðvikið. Þannig styrkir þú einstaklinga í fátækari löndum en ekki milljarðafyrirtæki.




