L íklega barátta við vindmyllur að ætla að benda Íslendingum á bestu pizzur í heimi. Þetta er jú sú þjóð sem borðar hvað mest af Domino´s pizzum en þær fara nærri að vera verstu pizzur heims að okkar viti.

Alls óhætt að taka mark á lista Gambero Rossi yfir bestu pizzustaði Ítalíu.
Það þarf ekki að fara í grafgötur með hvar bestu pizzur heims fást og það getur hver sem er sannreynt. Það auðvitað á Ítalíu. Jafnvel einföldustu pizzur á einföldum stöðum þar í landi bragðast svona um það bil tífalt betur en allra bestu pizzurnar hér heima.
Það á heldur ekki að koma á óvart að Ítalir halda úti stjörnulista yfir pizzastaði landsins með svipuðum hætti og Michelin tekur saman upplýsingar um bestu hefðbundnu veitingastaði heims. Það gerir ítalska matartímaritið Gambero Rosso og birtir árlega lista sinn yfir allra bestu pizzur landsins. Verðlaunin kallast Tre Spicchi sem útleggst sem þrjár sneiðar. Alls fengu 54 pizzastaðir í landinu gullverðlaun á liðnu ári og tólf til viðbótar þóttu framúrskarandi.

Töluvert meira heillandi en Domino´s sullið ekki satt? Mynd Gambero Rossi
Hið frábæra við listann atarna sú staðreynd að ekki er einungis tekið mið af bragði heldur og tekið tillit til fagmennsku á staðnum sem um ræðir. Er hráefnið ferskt eins og sumarvindur? Eldhúsið þrifalegt? Hefur starfsfólkið starfað þar lengur en í fimm mínútur? Verðlag eðlilegt?
Gambero Rossi birtir niðurstöður sínar ekki að fullu á netinu en tímaritið fæst á hverjum einasta blaðastað í landinu. Alls óvitlaust að spreða 400 krónum í tímaritið og svo dúlla sér við að elta uppi bestu pizzur heims í hverri borg fyrir sig 🙂




