F ljótasiglingar á Indlandi eru líklega jafn þekkt fyrirbæri og og heiðarleiki hjá Kristjáni Þór Júlíussyni. En ólíkt Kristjáni er sigling um þetta risastóra land hreint magnað fyrirbæri.

Mökkmengað og ógeðslegt er Gangesfljótið en á lúxusferju er það barasta ekki eitt einasta vandamál. Mynd InspirationIndia

Ein úr ritstjórn rúllaði sér í algjörri rælni í fljótasiglingu um hið mikla Gangesfljót fimm mínútum áður en Covid stoppaði allt sem á hreyfingu var. Sá túrinn reyndist súperskemmtilegur þvert á væntingar.

Siglingar um Indland eru, líkt og landið sjálft, ekki alveg toppstöffið á Instagram og fyrir því sú ágæta ástæða að engir nema harðkjarna Indlandselskendur vita að hægt er að sigla með ágætum stæl um tiltölulega stóran hluta hins fræga Gangesfljóts. Sama fljóts og heimamenn segja móður allra fljóta á heimsvísu en lítt að marka það því heimamenn hafa almennt ekki ferðast mikið utanlands og þaðan af síður séð Jökulsá í ham. Sem að okkar mati er töluvert merkilegri á 😉

Fimm stjörnu hótel í Egyptalandi? Neibbs. Svítan í Bengal Ganga fljótabátnum.

Slíkt ævintýri kostar auðvitað hönd, fót og aleiguna ef þú ert Indverji á meðallaunum en sleppur sennilega fyrir vesturlandabúa án þess að bankinn sé með mikið vesen.

Fararheill fékk sjö daga túrinn á 30% afslætti gegn umfjöllun svo því sé haldið til haga. Á móti kom að við fengum toppsvítu um borð og greiddum fyrir það 493 þúsund krónur miðað við gengið í desember 2019. Almennt verð er nær því að vera þetta 740 til 820 þúsund krónur og veltur á tíma ársins.

Að því sögðu þá eru fjölmargir aðilar að bjóða lúxussiglingar um Ganges en þá verða áhugasamir að gera sér ferð til Kolkata, Varanasi, Patna eða Simaria. Frá öllum stöðum eru fljótasiglingar mögulegar og þá erum við ekki að tala um ferjur heimafólks sem þarf að koma geitum eða saffrani frá einum stað til annars. Þetta eru „ekta gamaldags“ fljótabátar af breska skólanum og allt um borð miðast við vellríka Breta þegar þeir áttu allt á Indlandi og víðar en það.

Sem sagt ekki gefins á neinu tungumáli. En þú færð sitthvað fyrir dýran snúðinn. Flotta káetu, fimm stjörnu þjónustu, sæti með kafteininum hvert einasta kvöld plús yfirsýn yfir fjölmarga forvitnilega staði meðfram Gangesfljóti og líf bæjar- og borgarbúa.

Það misjafnt eftir fljótaferðum en stoppin eru yfirleitt nokkur og keyrslan róleg svo nægur tími gefst til að slaka á með sterkum Feni eða sulla í freyðivíni á þilfarinu og að auki valsa í land og fá nærmynd af fjórum til fimm bæjum eða borgum meðfram þessu mikla fljóti án þess að hafa mikið fyrir.

Dýrt já en þess virði ef fólk vill nettan lúxus á ferð um þetta mikla land. Gætið þess aðeins að kaupa slíkar ferðir á staðnum (annars miklu dýrari) og aðeins gegnum opinbera ferðaþjónustuaðila. Aðrir svindla og svína á þér eins og heimurinn sé að farast á morgun.

Óhrædd að hafa samband ef þið óskið frekari upplýsinga á netfangið fararheill@fararheill.is.

Góðar stundir.