L íklega hafa fáir sem ferðast hafa að ráði lent í aðstæðum sem voru öllu verri en nefnt var í krúttlegum ferðabæklingum áður en lagt var í hann.

Sum okkar eru óheppnari en aðrir
Það á við okkur sum að það er nánast regla fremur en undantekning að lenda í einhverjum miska, tjóni eða veseni á ferðalögum.
Oft við slíkar aðstæður er þó engum nema okkur sjálfum um að kenna. „Hvers vegna tók ég troðfullt veskið með út á götu þar sem því var stolið?“ „Hefði ég bara drukkið minna hefði ég ekki vaknað með ælu á andlitinu og tóma vasa í einhverri götu í einhverri borg.“ „Ég sem var að borga sjö þúsund fyrir hálsmen sem ég sé hér á 250 krónur.“
Og svo framvegis og svo framvegis.
En stundum eru ferðalögin martröð jafnvel þó við séum alsaklaus af vitleysishætti og stöndum okkur eins og hetjur. Eins og þetta ágæta myndband sýnir:




