H eimskt er heimaalið barn sögðu forfeður okkar og höfðu að líkindum helvíti rétt fyrir sér. Því fyrr sem farið er að heiman til lengri eða skemmri tíma því fyrr öðlast fólk reynslu og veganesti sem gagnast út lífið.
Ritstjórn Fararheill rífur upp hestaskál og lyftir fyrir öll þau ungmenni sem láta sig hafa það að leggjast í ferðalög þó peningar séu af skornum skammti. Slíkar ferðir eru oftar en ekki bakpokaferðir þar sem ferðast er létt og með allra ódýrasta móti og oftar en ekki gist á ódýrustu gistihúsum sem finnast í hverri borg og bæ.
Reynslan af slíkum ferðum á unga aldri er oftast nær það jákvæð og góð á anda og hold að margir geyma minningar úr slíkum ferðum til dauðadags.
Samkvæmt úttekt sem tímaritið Student Universe gerir reglulega meðal háskólanema í hinum ýmsu löndum eru neðangreind lönd þau vinsælustu til bakpokaferðalaga þessi dægrin og ekki síst sökum þess að hér endast peningarnir lengst.
♥ INDLAND > Stórt, mikið og afskaplega fjölbreytt land er Indland og þar má finna í hverju krummaskuðinu á fætur öðru hræbillega gistingu og matur er hvergi af skornum skammti. Gnótt ævintýra bíða þeirra sem þangað fara og vegur þar þungt mikil gestrisni heimamanna. Vissulega má setja út á hreinlæti almennt. Heitt er þar og rykugt á vegum. Þá verður og söknuður fljótt eftir heitri og góðri sturtu en flestir koma heim aftur með feitt bros á vör þrátt fyrir allt.
♥ BRASILÍA > Borgir Brasilíu eru fráleitt ódýrar fyrir Íslendinga og reyndar stórmerkilegt hvað laun almennt í landinu eru farin að skjaga yfir meðallaun í hinu norræna Íslandi. En hér er ekki verið að meina borgirnar stóru heldur allt hitt og nóg er af því. Porto Alegre, Recife, Ouro Preto, Pantanal og fjölmargir aðrir staðir eru ekkert minna en stórkostlegir og ekki má gleyma Amazon frumskóginum. Nokkuð dýrara að þvælast um en Indland en hér má líka finna hræbillega gistingu og matur kostar lítið.
♥ PORTÚGAL > Sami díll hér og í Brasilíu. Portúgal, að frátöldu Algarve svæðinu og stöku lúxus strandstöðum annars staðar er hræbilleg. Hótelgistingu er hægt að fá víða undir fimm þúsund krónum og það jafnvel fyrirvaralaust á ferðalagi og réttur dagsins á langflestum veitingastöðum um allt land á ekki að vera dýrari en 1.200 krónur. Áður en þú segir það dýrt skal á bent að réttur dagsins er jafnan þríréttað með drykkjum.
♥ SRI LANKA > Þessi fallega eyja undan Indlandi er að koma sterkt inn sem ferðamannastaður eftir óöld síðustu ára og stór hætta á að eftir 20 ár eða svo verði nettur Benídorm keimur af helstu ströndum landsins. En þangað til er þar skítbillegt að þvælast og íbúar engu minna gestrisnir en nágrannarnir á Indlandi.
♥ MEXÍKÓ > Það er kreppa víðar en á farsæla Fróni. Í Mexíkó má segja að hafa verið stanslítil kreppa í 20 ár og í sumum héruðum landsins lifir fólk almennt við fátæktarmörk 365 daga á ári. Það er ömurlegt en þýðir jafnframt að þar er hægt að þvælast um án þess að punga út of miklu. Halda sig þó frá ferðamannastöðunum á Yucatan skaganum og láta bæina við landamæri Bandaríkjanna eiga sig. Annars staðar, að Mexíkóborg meðtalinni, er billegt og skemmtilegt um að þvælast.





