Þó kylfingum í klúbbum hérlendis hafi fækkað allra síðustu misserin í fyrsta skipti í áraraðir virðist ekkert lát á vinsældum golfferða erlendis. Ný ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í golfferðum hefur formlega tekið til starfa.

Stórt nafn á nýrri ferðaskrifstofu. Skjáskot

Stórt nafn á nýrri ferðaskrifstofu. Skjáskot

Betri ferðir kallast barnið og er í nánu samstarfi við Wow Air á sama hátt og GB ferðir hengja sinn hatt hjá Icelandair.

Það reyndar undarlegt fyrirkomulag að okkar mati og tíðkast ekki víða. Ekki aðeins eru bæði flugfélög að reka eigin ferðaskrifstofur heldur getur samstarfið þýtt að viðskiptavinir njóta kannski ekki alls þess besta. Sem dæmi má nefna golfferðir GB ferða til Edinborgar sem eru fínar út af fyrir sig en oggupons galli að Icelandair flýgur alls ekki til Edinborgar.

Burtséð frá því fæst ekki annað séð af ferðum og verðlagningu Betri ferða en þar byrji menn bærilega. Boðið er upp á golfferðir til Bretlands, Frakklands og Spánar og fremst á blaði ferðir til La Sella á síðastnefnda staðnum. Ein ellefu daga golfferð Betri ferða í september, sem reyndar er strax uppseld, kostar 255.900 krónur á mann miðað við tvo. Það þýðir að hver dagur kostar rúmlega 23 þúsund á mann með golfi og hálfu fæði.

Til samanburðar er ferðaskrifstofan Heimsferðir einnig að bjóða ferðir til La Sella í haust og vetur. Vikupakki í boði og lægsta verð 209.900 krónur á mann miðað við tvo saman á sama díl. Það gerir um 30 þúsund krónur hver dagur eða sjö þúsund krónum hærra verð per haus per dag en Betri ferðir bjóða.

Góð byrjun. Heimasíðu Betri ferða og allra annarra ferðaskrifstofa á landinu finnurðu hér.