Óvíst er hversu margir hafa veitt því athygli að Wow Air hefur nú hríðlækkað verð á flugferðum sínum til London í haust og vetur. Svo mjög reyndar að Fararheill fellst nú næstum á að flugfélagið monti sig af því að vera flugfélag fólksins.

Wow lækkar verð á flugi til London verulega þennan daginn.

Wow lækkar verð á flugi til London verulega þennan daginn.

Wow er að bjóða næsta sólarhring eða svo fargjöld aðra leið til London frá byrjun september og alveg vel fram í desember niður í 6.985 krónur með sköttum og gjöldum en engum farangri nema handfarangri. Ekki láta fyrirtækið samt plata þig með 5.990 krónu tilboðunum því þar inn vantar bókunargjald.

Nóg er í boði þegar við skoðuðum vef Wow Air í dag á fjölda dagsetninga og sannarlega hér komið gott tækifæri til að fljúga á vit ævintýra í vetur og það án þess að blikka mikið auga fjárhagslega.

Hins vegar skýtur allskökku við, eða þannig, að Skúli og kompaní auglýsa allra lægstu verð sín til London sama dag og lággjaldaflugfélagið easyJet tilkynnir um mjög herta samkeppni til London. Tilkynning sem valdið hefur miklum titringi hjá bæði Wow Air og Icelandair en easyJet mun hefja flug til Gatwick frá Keflavík í október en það er sami völlur og íslensku flugfélögin nota þó Icelandair noti jafnframt Heathrow.

Verð á flugi aðra leið með easyJet er merkilegt nokk einnig sex þúsund krónur lægst og þar líka án farangurs.

En sama hvaðan gott kemur. Vonandi er þetta ekki í síðasta sinn sem við sjáum raunverulega samkeppnishæf verð í flugi frá lággjaldaflugfélaginu Wow Air