Ó mögulegt er að vita fyrir víst hversu margir Íslendingar notfæra sér íbúðaleigur á borð við Airbnb sem njóta gríðarlegra vinsælda á kostnað hótela og hefðbundinna gististaða. En eflaust ekki margir gera sér grein fyrir að þar er meira að segja hægt að leigja fyrrum heimili stórstjarna.

Ekki amalegar vistarverur. Fyrrum heimili Charlie Chaplin er hægt að leigja eina nótt fyrir tæpar 30 þúsund krónur. Mynd Airbnb

Ekki amalegar vistarverur. Fyrrum heimili Charlie Chaplin er hægt að leigja eina nótt fyrir tæpar 30 þúsund krónur. Mynd Airbnb

Charlie Chaplin bjó um tíma í ágætri villu í Topangagljúfri skammt utan Los Angeles í Kaliforníu. Áður en Chaplin karlinn kallaði það heimili var það einnig heimili Mickey Rooney sem eflaust færri muna eftir. Það húsnæði er eitt af nokkrum „stjörnuheimilum“ sem standa fólki til boða gegnum Airbnb.

Ekki nóg með það heldur er einnig hægt að finna heimili sem hafa verið notuð í misfrægum kvikmyndum gegnum tíðina.

Kjósi fólk að vera aðeins meira miðsvæðis í L.A. en í Topangagljúfri er fyrrum íbúð Jim Morrison, söngvara Doors, til leigu. Sú er steinsnar frá Sunset Boulevard hinu fræga og vistleg þó ekki sé hún ýkja stór. Þá íbúð verður reyndar að leigja heilan mánuð í senn og kostnaðurinn 490 þúsund krónur eða svo þegar þetta er skrifað.