Hann fékk fleiri milljónir króna í laun sem forstjóri Icelandair um áraraðir þrátt fyrir að gengi þess flugfélags, að mestu í eigu lífeyrissjóða landsmanna, hrapaði hraðar en halastjarna Halley´s. Og ekki kemur á óvart að delinn kaus að borga eins lítið í skatta og honum var unnt.

Gaman hjá Björgólfi. Enda karl með fjórar millur á mánuði og borgaði lítið sem ekkert í skatta. Mynd fréttabréf Samtaka atvinnulífsins
Góðu heilli ræður Björgólfur Jóhannsson hvergi ríkjum nú nema sem stjórnarmaður hjá bensínsalanum N1.
Við hér varað við Björgólfi um fjögurra ára skeið sem stjórnanda Icelandair eins og létt má finna á vef okkar með leit. Enginn tók mark á því og þess vegna erum við hér glottandi nú þegar herra Jóhannsson hefur tekið pokann sinn og gengið sína leið eftir að hafa stjórnað einni stærstu skútu landsins lóðbeint upp í kletta. Gengi Icelandair niður um tæp 70 prósent á sama tímabili og flestir ferðaþjónustuaðilar landsins hafa ekki undan að telja peninga í bankanum.

Björgólfur Jóhannsson borgaði eðlilegan skatt af 4,3 milljónum króna á mánuði. Kappinn þurfti hins vegar aðeins að punga út 20% af rúmum 23 milljónum króna á sama tímabili samkvæmt tekjur.is.
Herra Jóhannsson var mikill áhugamaður um að íslenska ríkið seldi frá sér Leifsstöð, Landsvirkjun og allt annað sem færir ríkinu tekjur en vildi gjarnan að ríkið héldi samt áfram að reka heilbrigðisþjónustu og skóla og allt hitt sem kostar bara peninga. Það þrátt fyrir að fyrirtækið Icelandair væri alls ekki á lífi ef ekki væri fyrir lífeyrissjóði allra landsmanna.
Sem sagt; herra Jóhannsson ekki aðeins hörmulegur stjórnandi heldur hörmuleg manneskja líka. Það kemur kostulega í ljós þegar litið er á tekjur Jóhannssonar árið 2016 samkvæmt vefnum tekjur.is. Það má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti af þeim vef að herra Jóhannsson er lítið fyrir að borga skatta eins og allir aðrir landsmenn. Honum finnst eðlilegra að hann borgi aðeins um helming þess sem plebbarnir Jón og Gunna greiða til ríkisins fyrir sitt strit.
Þjóðráð að hætta viðskiptum við N1 nú þegar stjórn þess fyrirtækis, einnig að mestu í eigu almennings, hefur nú innlimað herra Jóhannsson sem stjórnarmann. Gaurinn hefur jú engin meðmæli önnur en að minnka verðmæti Icelandair um 70 prósent á mesta annatíma í íslenskri ferðaþjónustu. Hvernig fer hann með N1…







