Þrettán ár liðin frá hryðjuverkunum í New York í september 2001 og enn þjáist Kaninn af ofsóknaræði. Nú heimta yfirvöld vestanhafs að öll rafeindatæki ferðalanga til landsins séu skoðuð í þaula. Sem merkir að gleymi einhver að hlaða símann sinn, spjald- eða fartölvu er viðkomandi bannað að stíga um borð í vélar til Bandaríkjanna.

Nú skal kveikja á öllum raftækjum farþega áður en gengið er um borð í vélar til Bandaríkjanna. Mynd danfinkelstein

Nú skal kveikja á öllum raftækjum farþega áður en gengið er um borð í vélar til Bandaríkjanna. Mynd danfinkelstein

Bandaríkjamenn eru semsagt enn að herða reglur sínar fyrir ferðafólk og virðist engu breyta. Metfjöldi ferðamanna sótti landið heim á síðasta ári.

Fararheill hefur ekki borist svar frá Keflavík hvort reglurnar gildi frá Leifsstöð en samkvæmt tilkynningu Heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna eru það tilteknir erlendir flugvellir sem fá tilskipun þess efnis að kveikja á öllum rafeindatækjum farþega áður en stigið er um borð.

Það er gert þar sem hægt sé að fela sprengju eða sprengjur í raftækjum og þetta því gert til að vernda farþega að því er fram kemur.

Í öllu falli er vænlegast að hafa vaðið fyrir neðan sig og drekkhlaða græjurnar því það er gallsúrt að fá ekki að fljúga þar sem rafhlaðan í spjaldtölvunni er búin.