E inn er sá staður í Bandaríkjunum þar sem stuðið er jafnan meira en annars staðar um miðjan febrúar ár hvert. Mardi Gras í New Orleans er sá staður en kannski sökum mikilla evrópskra áhrifa láta gestir þar allt flakka. Sjást nú þar fáklæddir karlmenn og konur allan tíma sólarhringsins sem hátíðin stendur yfir.

Bourbon stræti í New Orleans er partí út í eitt og tvennt og þrennt meðan á Mardi Gras hátíðinni stendur

Bourbon stræti í New Orleans er partí út í eitt og tvennt og þrennt meðan á Mardi Gras hátíðinni stendur

Mardi Gras stendur fyrir Feita þriðjudaginn en kaþólskir þekkja þann dag vel. Sá ávallt daginn fyrir Öskudag.

Mardi Gras í New Orleans tekur þó meiri tíma en svo og hátíðin atarna stendur nú jafnan yfir í heila viku fram að Öskudeginum. Þó djamm og djúserí sé mikið fram að þeim degi er það þó þann dag sem skrúðgöngur fara um hið fræga franska hverfi New Orleans og gestir og gangandi sleppa hvað mest fram af sér beislinu.

Unga fólkið í Bandaríkjunum hafa sérstaklega fylgt liði á karnivalið í New Orleans því það er einn fárra staða í landinu öllu þar sem lítið er fárast yfir nekt og almennum léttum skrílslátum meðan á húllumhæinu stendur. Kveður reyndar svo rammt að þeirri náttúru gesta að afklæðast og sýna dónaskap að þangað mæta hundruðir ljósmyndara ár hvert eingöngu til að mynda fáklæddar konur og menn.

Ekki þarf að segja fólki að panta þarf gistingu í New Orleans yfir karnivalið með góðum fyrirvara og helst ári áður ef vel á að vera. Þá eru flest betri hótelin í New Orleans með reglu að gista þurfi á þessum tíma að lágmarki fimm daga.

Margir gestir sem koma yfir karnival halda að aðalpartíið fari fram í Bourbon strætinu meðfram hinum fallegu frönsku byggingum sem þá götu prýða. Þó væru heimamenn fljótir að segja þér að sams konar partí og jafnvel betri fara fram í hinum ýmsu hverfum borgarinnar. Munurinn er að þar eru eingöngu heimamenn að fagna en í Bourbon stræti er yfirgnæfandi meirihluti ferðafólk. Af því leiðir náttúrulega að verðlag allt er tvöfalt þar miðað við annað sem gerist.

Hverfi borgarinnar eru dálítið í skákborðsformi. Fín og örugg hverfi eru þétt við hlið annarra sem enginn færi inn í nema tilneyddur. Öll hótel og upplýsingaþjónustur gefa ferðafólki ágæt kort og leiðbeiningar sé eftir því leitað. Um að gera að prófa annað en gervi karnival sé þess kostur.