Skip to main content

K annski einn góðan veðurdag árið 2117 verður í boði að taka lest upp á tind Snæfells á Austurlandi og fá sér kaffi og pönnsur á toppnum áður en degi hallar. Það er hins vegar hægt að fara með lest upp á tindinn og fá sér gott í gogg ef um er að ræða fjallið Snæfell á eynni Isle of Man, Mön, sem er ein Bretlandseyja.

Gamalsdags lestarferð á tind Snæfells er óhætt að taka á eynni Isle of Man.

Gamalsdags lestarferð á tind Snæfells er óhætt að taka á eynni Isle of Man.

Eyjan atarna er æði vinsæl meðal ferðalanga sem vilja slökun enda lífið á eynni öllu hægara en það gerist beggja megin við á Írlandi og í Englandi.

Þar er þekktasta fyrirbærið fyrrnefndur tindur, Snaefell, sem rís 620 metra yfir sjávarmáli og gefur aldeilis gott útsýni til allra átta. Gárungar hafa einmitt um aldir talað um að þetta sé eini staður heims þar sem sjá mátti til sex konungsríkja á sínum tíma: Isle of Man eyju, Englands, Skotlands, Wales, Írlands og himnaríkis.

Eyjan er reyndar mun þekktari sem skattaparadís en sérstakur ferðamannastaður en sé fólk á þvælingi milli Englands og Írlands er óvitlaust að gera stopp hér enda miðja vegu milli Liverpool og Belfast svo dæmi sé tekið sé farið með ferju. Frá Englandi tekur sigling hingað rúmar þrjár klukkustundir en rúmlega tvær frá N.Írlandi.