Ætli fólk alla leið til Asíu að njóta lífs og unaðsstunda er ekkert verra að gera það með smá stíl. Besta flugfélag heims samkvæmt lista World Travel Awards, Emirates, er nú að bjóða flug frá London til nokkurra skemmtilegra borga Asíu á sértilboðsverði.

Hundrað kallinn kemur fólki nú til Asíu í verulegum þægindum með Emirates

Hundrað kallinn kemur fólki nú til Asíu í verulegum þægindum með Emirates

Vel fylgjumst við hjá Fararheill með verði á ferðum frá Evrópu til Asíu og við sjáum ekki annað en verðlag fari hægt og bítandi lækkandi eftir töluverða hækkun í kjölfar efnahagskreppunnar 2008. Fyrir þann tíma var komist frá London til Kuala Lumpur, Singapore, Bangkok eða Kína fyrir 80 til 100 þúsund krónur og slík verð sjást nú æ oftar á nýjan leik.

Og nú bregður svo við að Emirates, sem alla jafna er ekki að bjóða nein lágmarksverð, er að selja flugmiða á þessu verði til allnokkurra borga hinu megin á hnettinum. Svo lengi sem bókað er fyrir mánaðarmótin kemst með með flugfélaginu til Bangkok, Dúbai, Kuala Lumpur og Mumbai fyrir 90 til 100 þúsund krónur fram og aftur. Aðeins dýrara er til Jóhannesarborgar í Suður Afríku. Í öllum tilfellum er millilent í Dúbai en flogið er frá Gatwick þangað sem bæði Wow Air og Icelandair venja komur sínar líka.

Ágætt er að muna að hægt er að versla út í eitt í Asíu áhyggjulítið því Emirates leyfir hverjum og einum að taka 30 kíló af farangri og oftar en ekki er flogið með risaþotunni A380 sem er hreint ævintýri að stíga inn í.