Á hugasamir um lestarferðalög geta nú tekið gleði sína. Nú er loks hægt að taka hraðlest á milli Parísar og Barcelóna og fara á milli þessari æðislegu borga á rúmum sex klukkustundum.

Ekki

Nýr möguleiki að opnast í ferðum til Barcelóna frá París og tilbaka.

Hingað til, þrátt fyrir fínar lestarsamgöngur í báðum löndum, hefur aðeins verið mögulegt að fara þessa leið í næturlest sem tekur milli 11 og 13 klukkustundir aðra leiðina. Sem er fráleitt jafnvel þó afar þægilegt sé að sofa í þeim lestum.

En fyrir marga er tími peningar og tólf tíma dangl í lest ekki alveg á dagskránni. En helmingur þess gæti vel sloppið. Þannig opnast líka enn einn möguleikinn að komast ódýrt til Barcelóna svo lengi sem hægt er að finna tilboðsflug til Parísar en þangað fljúga bæði Wow Air og Icelandair og líklega mun flugfélagið Transavia bjóða að nýju flug milli Keflavíkur og Parísar næsta sumar.

Þannig væri hægt að yfirgefa París snemma dags og vera farin að sprikla um á Römblunni seinnipart dags. Sömuleiðis tekið lest seint að kvöldi frá Barcelóna og náð flugi snemma dags frá París.

En auðvitað er lestarferðalagið ekki gefið heldur. Miðaverð aðra leiðina í hraðlestinni mun varla kosta undir þrettán þúsund krónum að lágmarki.