Hér er ágæt hugarleikfimi fyrir fræðinga: Hvernig stendur á því að frá því að Bretar ákváðu í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið með tilheyrandi hörmungum fyrir þjóðina alla, hefur breska pundið SAMT SEM ÁÐUR rúllað yfir íslenska krónu eins og Frakkar yfir íslenska landsliðið í fótbolta?

Íslenska krónan einn gjaldmiðla sem gefa eftir gagnvart pundi þessa síðustu og verstu.

Aldeilis ömurlegt að vitna gengi íslenskrar krónu gagnvart bresku pundi þessa síðustu og verstu. Pundið gaf duglega eftir gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum heims í kjölfar Brexit atkvæðagreiðslunnar fyrir tveimur árum síðan, þó aðeins hafi dregið saman að nýju undanfarið.

En gagnvart íslensku krónunni er annað uppi á tening. Hvert einasta pund kostar okkur nú 30 PRÓSENT MEIRA en þegar Bretar ákváðu að yfirgefa Evrópusambandið. Það má glögglega sjá á meðfylgjandi korti:

Í byrjun árs 2017 gátum við keypt eitt pund fyrir 125 krónur. Nú þarf nánast pund af íslensku holdi fyrir hvern pundseðil sem kostar rúmlega 160 krónur eða svo þegar þetta er skrifað.

Dapurt er það á tíma þegar Íslandið var á bullandi uppleið en Bretlandið á leið niður í svaðið. Þetta þýðir auðvitað bara að allt sem þú kaupir í Bretlandi núna kostar 30% meira en það gerði fyrir tveimur árum síðan. Sem aftur merkir að enginn gerir súperkaup á Bretlandseyjum þessi dægrin. Verslunarferð til Glasgow mun illa borga sig að svo stöddu…