K annski þetta sé gjöf til þeirra sem allt eiga. Gjafakort í skylmingaskóla í Róm þar sem áherslan er á skylmingalist þá er kappar Róm til forna stunduðu.

Hvar betra að læra skylmingalist en í Róm?

Hvar betra að læra skylmingalist en í Róm?

Þó nokkuð sé um liðið síðan helsta skemmtun Rómverja var að fylgjast með skylmingaköppum berjast upp á líf og dauða á risastórum leikvöngum þess tíma er slíkt fyrirbrigði enn æði vinsælt. Það sést best á mörgum vinsælustu kvikmyndum seinni tíma eins og Hunger Games og Gladiator.

Í hinum virta Scuola Gladiatori sem er rekinn af rómverska sögufélaginu, Gruppo Storico Romano, má læra allt um bardagalist þeirra skylmingakappa sem inn á leikvanga fortíðarinnar gengu og fóru annaðhvort út aftur sem hetjur eða á líkbörum.

Það er nefninlega annað að læra skylmingar á nútímavísu og þær er menn í Róm til forna lögðu stund á þó grunnurinn sé sá sami.

Vinsældir skólans í Róm eru þó líka tilkomnar vegna almenns líkamsræktaráhuga en skylmingar í heitu loftslagi er töluvert erfiðara sport en margur heldur. Bara hefðbundið sverð og skjöldur skylmingakappa vega saman allt að tíu kílóum fyrir utan allt annað sem kappar til forna notuðu í bardögum sínum.