Með fullri virðingu fyrir kvenfólki og kvenréttindafrömuðum þá er það engu að síður staðreynd árið 2019 að bert kvenmannsholdið selur og selur grimmt. Spyrjið bara konuna sem á og rekur flugfélagið VietJet Air.

Flugþjónarnir hjá VietJet Air valsa ekki aðeins oft um að bikini einu klæða heldur og sýna dansa og leikræna tilburði þegar svo ber undir.
Konan sú, Nguyen Thi Phuong Thao, mun á næstu dögum verða ein ríkasta kona Asíu þegar flugfélagið fer á hlutabréfamarkað í þeirri álfu. Þá hættir hún að vera bara rík og verður vellauðug en Bloomberg fréttastofan telur víst að Thao fái litla sextán milljarða beint í vasann fyrir að selja hluta bréfa sinna í flugfélaginu sem hún stofnaði og rekur.
Og hvað er svo leyndarmálið við VietJet Air? Hvað er það flugfélag að gera svona stórmerkilegt? Hvernig fer nýtt flugfélag, stofnað í lok árs 2011, að því að flytja 25 milljónir farþega örfáum árum síðar?
Svarið er nánast ekkert annað en öll önnur lággjaldaflugfélög með einni undantekningu þó. Flugþjónarnir, sem eru eingöngu flugfreyjur, klæðast oftar en ekki bikiní við störf sín.
Það hefur hitt i mark í Asíu svo ekki sé fastar að orði kveðið en þar er eilítið öðruvísi samfélagssýn á nekt en á vesturlöndum eins og þeir sem ferðast hafa um Asíu vita. Þá hjálpar efalítið að 70 prósent flugfarþega í Víetnam og nágrannalöndum eru karlkyns.
Flugfélagið hefur reyndar verið sektað fyrir uppátækið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar en forstjórinn segir að flugþjónar hafi val um hefðbundinn þjóðarbúning Víetnam, hvers lenskt flugfélagið er, eða bikini. Þar sem þjóðbúningurinn er ekki sá allra þægilegasti til þjónustu kjósa langflestir flugþjónar bikiní í staðinn.







