K olefnisjöfnun flugfélaga er lítið annað en lélegur brandari að mati forstjóra grænasta flugfélags Evrópu: Wizz Air.

Flugrekstur í heiminum mengar aðeins rúm 3 prósent í heildina. En það eru hlutfallslega fáir að fljúga á heimsvísu og þeir farþegar menga því miklu meira en aðrir sem fljúga ekkert.

Stöku forstjórar þarna úti koma hreint til dyra. Jafnvel þó það sé óvart. Og taka þannig undir með ritstjórn Fararheill sem haldið hefur þessu sama fram um nokkurra ára skeið.

Það á sannarlega við um forstjóra Wizz Air, Jozsef Varadi, sem aðspurður út í kolefnisjöfnun flugfélaga á stórri flugráðstefnu nýverið hló við og kallaði fyrirbærið brandara. Varadi pínulítið þekktur í bransanum fyrir að kalla hlutina sínu rétta nafni ekki ólíkt forstjóra og helsta eiganda Ryanair.

Varadi kallaði „kolefnisjöfnun,“ flugfélaga bara hreinan grænþvott og yfirborðsmennsku. Það væri tilraun flugfélaga með eldgamlar reykspúandi rellur til að koma sér í mjúkinn hjá fávísum neytendum.

Merkilegt nokk er ekki langt síðan við hér fjölluðum um þetta fyrirbæri eins og lesa má um hér. Að auglýsa og monta sig af því að gróðursetja nokkur tré fyrir hvert flug sem flogið er er eins mikil yfirborðsmennska og framast er unnt. Það tekur jú eitt stykki tré tíu til fimmtán ár hið minnsta, við bestu aðstæður, að soga til sín hámarksmagni af koltvísýringi úr andrúmsloftinu. Flugið sem þú þykist vera að kolefnisjafna í dag verður þannig ekki raunverulega kolefnisjafnað fyrr en árið 2032 í allra fyrsta lagi og við allra bestu aðstæður…