L íklega ekki ýkja margir Íslendingar sem láta sig hafa túr til eyjunnar Lombok í Indónesíu. Þó sú státi af sömu yndislegheitum og nágrannaeyjan Balí er hún ekki jafn vinsæl og meira þarf að hafa fyrir heimsókn hingað. Það er samt í Lombok sem er mögulega eitt forvitnilegasta þorp landsins alls.
Það þarf mikla stækkun á kortum Google eða feitt stækkunargler yfir hefðbundnum kortum til að finna smábærinn Sade. Það sjö hundruð manna þorp er bara eitt af hundruðum slíkra hist og her á eynni.
Þorpið er þó orðið sæmilegt þekkt og þar helst fyrir hinar ýmsu vefnaðarvörur sem eru gjarnan framleiddar með fornum aðferðum eyjaskeggja.
Þó vefnaðarvörur per se séu góðra gjalda verðar er það þó fjarri því það eina merkilega við þetta litla þorp. Það telst einnig töluvert framandi fyrir vestræna ferðamenn að hér eru gólf húsa „þrifin” tvívegis í mánuði og þar ekki gripið neitt í fjöldaframleiddan hreingerningarlög. Neibbs, þau skúruð með mykju úr kúm eða vísundum. Lyktin miður spennandi svona í nokkrar klukkustundir í kjölfarið.
Það allra markverðasta við Sade er þó sú staðreynd að allir íbúarnir, af Sasak-ættbálknum sem aðhyllast múslimatrú en ekki hindúatrú eins og nágrannarnir á Balí, giftast eingöngu innbyrðis innan þorpsins og eingöngu ættmennum sínum! Nánar tiltekið frændum eða frænkum.

Þorpsbúi í Sade sýnir dans innfæddra af miklum móð. Mynd Mikaku
Eins og það eitt og sér sé ekki allrar athygli verð þá er það aldagamall siður líka að menn á biðilsbuxum vera að „ræna” þeim kvenmanni sem hugur stendur til og flytja hana á brott tímabundið. Þar reyna þeir að fá kvenmanninn til að fallast á giftingu en ef það gengur ekki upp þarf vonbiðillinn að gjöra svo vel og greiða fjölskyldu konunnar sekt og halda sig fjarri. Sem auðvitað er töluvert flókið mál í agnarsmáu þorpi.
Af þessu má ráða að það er til margt vitlausara en taka túr um þorpið ef þú finnur þig á þessum slóðum. Hafa samt hugfast að hér eru óprúttnir að störfum líka. Mörgum sem í þorpið koma á eigin vegum sagt að heimsókn sé óheimil nema greiða fyrir leiðsögn. Tóm þvæla reyndar en menn eru ágengir. Þá fer og líka sögum af því að þorpsbúar séu lítt hrifnir ef ferðafólk kaupir engin klæðin af vefurunum miklu og láti fólk jafnvel heyra það.
Skipulagðar ferðir hingað eru í boði frá öllum helstu ferðamannastöðum Lombok.




