V art er blaði eða tímariti flett þessa dagana án þess að finna flott myndskreyttar greinar um heillandi og spennandi jólamarkaði eftir einhverja krakka á lágmarkslaunum sem aldrei hafa farið á erlenda jólamarkaði.
Þar er gjarnan hent fram þýðingu á erlendum greinum um vinsæla markaði og yfirleitt alltaf í Evrópu þó jólamarkaði megi finna í einhverju líki nánast um heim allan. Slíka markaði er að finna meðal annars í Dúbai, Hong Kong, Singapore og á Filippseyjum svo fátt sé nefnt.
En góðu heilli mun Dúbai seint yfirtaka jólamarkaðsmarkaðinn því þar er hvorki snjór né frost eða sú aldagamla hefð sem skapar þá yndislegu umgjörð um marga af betri jólamörkuðum Evrópu.
Það er engin tilviljun að elstu jólamarkaðirnir eru yfirleitt alltaf þeir skemmtilegustu. Það helgast af því að heimamenn líta á markaðina sem hátíð og bera næga virðingu fyrir að heilu fjölskyldurnar fara saman á slíka markaði. Þess vegna meðal annars eru jólamarkaðir hér á Íslandi litlausir og döll. Engin saga, engin hefð.
En hvaða jólamarkaðir Evrópu eru elstir?
Um það er reyndar dálítið deilt og fer dálítið eftir viðmiðum hvers og eins. Allra fyrstu markaðarnir voru aldrei sérstakir jólamarkaðir þó þar væri að finna einn og einn söluaðila jólavara. Elstu heimildir um markaði þar sem einnig mátti finna jólavörur ná aftur til ársins 1294 eða merkilegt nokk sama ár og fyrst bárust fregnir af því að gosvirkni væri á Geysissvæðinu.
Með því sniði sem nú þekkist og milljónir sækja árlega er það að líkindum Striezelmarkt jólamarkaðurinn í Dresden í Þýskalandi. Grúskarar vilja meina að um þann markað sé að finna heimildir allt aftur til ársins 1434. Sé það rétt er hann að skjaga í sex hundruð árin á næstu áratugum. Striezelmarkt ætti strangt til tekið að þýðast sem brauðkökumarkaðurinn enda er striezel gamalt orð yfir jólaköku þá sem Þjóðverjar geta ekki lifað án í dag; stollen.
Elsta jólamarkað Frakklands er að finna í Strassborg og kemur kannski ekki á óvart enda borgin æði nálægt landamærunum að Þýskalandi og hefur lengi verið bitbein Frakka og Þjóðverja. Markaður þeirra er æði gamall eða frá árinu 1570 samkvæmt fræðingum.
Sé farið yfir til Belgíu þarf að sækja borgina Liege heim til að finna elsta og að margra mati besta jólamarkað þess lands. Hver man ekki eftir knattspyrnuliðinu Standard Liege sem Ásgeir Sigurvinsson lék með um árabil. Þarna er töluvert meira um vöfflur og súkkulaði en annars staðar svo ekki sé minnst á Peket sem er gin þeirra Belga.
Borgin Graz er sögð eiga heiðurinn af elsta jólamarkaði Austurríkismanna en Vínarbúar telja sig eiga heiðurinn. Í nágrannaríkinu Sviss er það Basel sem þann titil heimtar. Á Spáni er einnig deilt nokkuð um elsta markaðinn en Barcelóna með sinn Fira de Santa Llucia við dómkirkjuna er sagður líklegur. Kraká í Póllandi eignar sér heiðurinn af elsta og besta markaðnum þar í landi og höfuðborg Tékklands, Prag, er sögð eiga lengsta söguna á þeim slóðum.





