
Ekkert Photoshop og ekkert fifferí. Svona eru raunverulega nokkrar strendur Kefalóníu í Grikklandi. Mynd kefaloniauniqueholidays
Þú last þetta rétt. Appelsínugular strendur er eitthvað sem enginn á von á neins staðar í veröldinni þó vissulega sé vitað að sandur sá sem safnast fyrir á hinum ýmsu ströndum geti verið mismunandi að lit. Hvítur sandur og afbrigði af hvítum algengast víðast hvar um heiminn en eins og við Íslendingar þekkjum eru svartar strendur ekki óþekktar heldur. Þá finnst að minnsta kosti ein marglit strönd í Ástralíu og þær efalítið fleiri strendurnar í merkilegum litum.
En appelsínugular strendur er, þegar þetta er skrifað, algjört einsdæmi sem finnst bara á þessari einu eyju við Grikkland og aðeins á örfáum þeirra stranda sem Kefalóníu prýða. Allar hinar eru bara hvítar og fallegar.

Engin skýring finnst á þessu fyrirbæri en þörungum undan ströndinni er um kennt. Sem er reyndar langsótt skýring því sömu þörungar finnast undan ströndum Kefalóníu og ströndum margra annarra grískra eyja.
Í öllu falli toppstopp á þessari fallegu eyju. Eyju sem vissulega heillar ferðafólk en fjarri því í þeim mæli sem vinsælustu eyjur landsins trekkja. Það eru því meiri líkur á að kynnast skemmtilegur og oft skringilegu heimafólki hér um slóðir. Sem er húrrandi plús í okkar bókum 🙂




