Þ að er þetta klassíska. Alltaf verið að svindla á okkur neytendum. Ekki hvað síst þegar kemur að flugferðum. Eða hvers vegna tekur flug til Kanarí, Alicante, Rómar, Boston eða Osló nákvæmlega jafn langan tíma og það gerði fyrir 40 árum síðan???

Miklu betri rellur, miklu fullkomnari tækni en við samt áratug að fljúga til Kanaríeyja…

Árið 1988 tók rétt rúmar sex stundir að fljúga frá Keflavík til Gran Canaria. Það tekur ennþá sex tíma.

Hvers vegna tekur það ennþá rétt rúmar sex stundir þrátt fyrir tæknibyltingu í flugheimum yfir það tímabil, þrátt fyrir miklu straumlínulagaðri rellur, þrátt fyrir færri starfsmenn um borð, þrátt fyrir margfalt betri upplýsingar um veður og skýjafar og þrátt fyrir margfalt betri flugleiðsögukerfi en voru í boði fyrir tæpum 50 árum síðan?

Ímyndaðu þér eitt augnablik ef netsambandið á heimilinu væri frá 1984. Eða gagnaflutningur í símann þinn? Þá væri ekkert gúggl, ekkert feisbúkk og enginn væri að bíða í tvo til þrjá sólarhringa eftir að horfa á 30 mínútur af Downton Abbey eða Squid Game á Netflix. Þó ekki sé nema vegna þess að árið 1984 var alls ekkert netsamband og alls engar tölvur til að deila efni á sekúndubroti. Fokk, það voru ekki einu sinni til bílasímar árið 1984 og þaðan af síður farsímar.

En í flugsamgöngum erum við enn föst í 1984. Hvað veldur?

Jú, ekki svo að skilja að nýjustu rellur Airbus og Boeing séu framleiddar með hreyflum frá árinu 1984. Hreint ekki. Tæknilega gæti nýleg rella flogið milli Keflavíkur og Kanarí á rétt rúmum fimm klukkustundum ef allt væri sett í botn. 40 til 50 mínútum fljótar en reyndin var fyrir 40 árum.

Ástæða þess að ekkert hefur breyst í þessum efnum næstum síðan Jesú Kristur var krossfestur er, merkilegt nokk, sú að flugfélög vilja ekki flytja þig á sem stystum tíma frá A til Ö.

Flugfélögin hérlendis og sum hver erlendis líka, hugsa ekki um hvernig er fljótast komist frá einum stað til annars og til baka heldur fremur hvernig má hámarka nýtingu flugvéla á sólarhringsbasa.

Á mannamáli þá græða Play eða Icelandair ekkert á því að fljúga á fullu stími til Kanarí eða til baka. Það helgast af því að í allra besta falli er flugið aðra leiðina samt fimm tímar plús og leiðin heim fimm og hálfur tími plús. Oftar eru þó mótvindar og leiðindi aðra hvora leiðina svo túrinn getur tekið þetta 30 – 60 mínútum lengur. Og með tilliti til að skipta verður alfarið um áhafnir í flugvélum á þetta tólf til fimmtán stunda fresti þá annaðhvort verða flugfélögin að vera með nýja áhöfn klára hvernær sem rellan frá Kanarí lendir. Og það getur kostað feitan skilding að senda nýja áhöfn út í Leifsstöð sem bíður þar hugsanlega lon og don ef eitthvað kemur upp á í fluginu.

Með öðrum orðum, þá kostar meira að hafa alltaf nýja áhöfn á kantinum en að lenda rellunni á Kanarí og leyfa þeirri áhöfn að fara á hótel og hvíla sig eða öfugt. Þetta aðeins auðveldara ef flugið er bara til Köben, Parísar eða Frankfurt en það þarf samt að skipta um alla áhöfnina eftir tvo flugleggi eða svo.

Það má ekki gleyma að þótt tæknilega sé komist frá Keflavík til Parísar og út aftur á þetta átta til níu klukkustundum og fræðilega sé hægt að taka enn eina ferðina með sömu áhöfn aðra hvora leið þá þarf hver rella að vera þokkalega fullsetin til að slíkt borgi sig heilt yfir.  Og það er mjög sjaldan raunin hjá Icelandair eða Play.

Þess utan, þá kostar það rellur Boeing og Airbus líka extra að farta draslinu eins og bílunum okkar. Eldsneyti kostar.

Ergo; flugið til Kanarí er áfram sex tímar plús eins og var hér fyrir þrjátíu árum síðan…