T axfrí-dagar í Hagkaupum, Megavika Dominós, Svartur föstudagur í Tölvuteki. Spennandi ekki satt?

Reglan á útsölum heima á Fróni er þetta 30-50 prósenta afsláttur og kannski upp í 60 prósent allra síðustu dagana. Á Ítalíu, Spáni og Frakklandi eru afsláttarkjör oft 60-70 prósent strax í byrjun.
Jú, fyrir alla þá sem aldrei hafa stigið fæti út fyrir steina landsins hljóma tilboðin á taxfrí dögum, megaviku og svörtum föstudegi heima oftast nær frábær. Tuttugu til þrjátíu prósent af vörum sem eru yfirleitt verðlagðar með 200 prósenta álagningu… Verslunareigendur glotta feitt í bankanum fyrir því.
Íbúar sunnar í álfunni í Frakklandi, Ítalíu og á Spáni kippa sér hins vegar lítt upp við 20 til 30 prósenta afslætti á einu né neinu. Samkeppnin það rík að til að trekkja fólk alvarlega þarf að lækka verð DUGLEGA. Duglega á borð við 50 til 70 prósent strax við upphaf og ef eitthvað drasl er eftir þegar útsölulok eru framundan er ekki óalgengt að hækka afsláttinn í 80 og jafnvel 90 prósent. Það kostar jú að halda lager og enginn vill mikið með gamlar vörur að hafa þegar stundir líða fram.
Með það í huga að kaupin almennt á Spáni kosta 30 til 60 prósent minna en heima á venjulegu verði er því aldeilis ástæða til að gera sér ferð suðureftir þegar útsölurnar eiga sér stað. Líttu á það sem extra bónus að detta inn á spænskar útsölur.
Spurningin er hins vegar HVENÆR spænskir henda í útsölur.
Gróflega má segja að stórútsölur séu þrisvar á ári. Þær fyrstu hefjast strax í byrjun janúar í velflestum spænskum verslunum. Reglan lengi verið að 7. janúar er fyrsti í útsölu en að minnsta kosti í höfuðborginni Madríd hafa menn tekið feitt forskot á þá sælu og henda í útsölur strax 1. eða 2. janúar. Lágmarks afsláttur heilt yfir er 40 prósent og útsölurnar ganga eins lengi og þurfa þykir. Stundum allt upp í tvo mánuði.
Seinni útsölutíminn er júlí til september og þá líka er reglan að útsöluvörur fjúka á 30-50 prósenta afslætti að lágmarki.
Hjá stöku verslunum og keðjum eru minniháttar útsölur þess utan en afsláttarkjörin undantekningarlaust lægri og aðeins brot af vöruúrvali á útsölu.
Síðast, en ekki síst, þá er hinn bandaríski Svarti föstudagur orðinn stór á Spáni líka. Feitir og miklir afslættir auglýstir þann daginn. En ólíkt þessum hefðbundnu stórútsölum þá hafa spænsk neytendasamtök ítrekað komið upp um verslanir sem sneiða hjá neytendalögum með því að hækka duglega vöruverð tveimur til þremur vikum FYRIR svartan föstudag, segjast svo bjóða 50 prósenta afslátt á deginum mikla en eru í raun aðeins að bjóða 5-15% raunlækkun.




