Okkur talin trú um að einvalalið úr íslensku viðskiptalífi reki þau tvö alþjóðaflugfélög sem teljast íslensk: Wow Air og Icelandair. En þrátt fyrir allt þetta gáfaða fólk berjast bæði í bökkum í samkeppninni og hvorugt þeirra upp á marga fiska í þjónustulegu tilliti.

Allt þetta sniðuga fólk í stjórn flugfélaganna okkar en engin verðlaun. Minnir dálítið á bankana okkar 2007…
Það auðvelt að ganga úr skugga um ofangreind atriði. Hlutabréf í Icelandair á pari við það sem þau kostuðu ÁÐUR en ferðamannasprengjan til landsins hófst 2012. Mesti uppgangstími í íslenskri ferðaþjónustu kom og fór og og hlutabréfahagnaður lífeyrissjóða landsmanna, sem eiga fyrirtækið, er kringum NÚLL. Það æði rýr uppskera fyrir tugmilljarða fjárfestingar. Væri einhverjum lífeyrissjóð landsmanna ekki slétt sama um þegna landsins væri búið að henda út allri yfirstjórn Icelandair eins og hún leggur sig.
Ekki þarf að fjölyrða um viðskiptasnilli eiganda Wow Air. Sá hitti 100 prósent á stærsta G-blett í íslenskri ferðaþjónustu og hóf starfsemi 2012. Þaðan lá leiðin 90 gráður upp á við um fimm ára skeið með ótöldum hagnaði, partíum og drottningarviðtölum í fjölmiðlum. En kappinn gleymdi beisik eðlisfræði; það sem fer upp kemur niður. Nú bendir allt til þess að Wow Air annaðhvort verði bandarískt flugfélag eða deyi drottni sínum alfarið.
En hvað um orðsporið erlendis?
En hvað situr eftir hjá viðskiptavinum Wow Air og Icelandair eftir þennan mikla uppgangstíma burtséð frá erfiðum rekstrinum? Hafa flugfélögin þó eignast aðdáendur og staðið undir orðspori Íslands sem eins fegursta áfangastaðar heims? Dýrasta starfsfólk í flugheimum, markaðs- og þjónustusérfræðingar á hverju strái og vel samkeppnishæf fargjöld milli austurs og vesturs.
Kíkjum á nokkrar vinsælar einkunnasíður veraldarvefsins:
Icelandair: 2 stjörnur af 5 mögulegum
Wow Air: 1 stjarna af 5 mögulegum
Icelandair: 3,5 stjörnur af 5 mögulegum
Wow Air: 3 stjörnur af 5 mögulegum
Icelandair: 6 stjörnur af 10 mögulegum
Wow Air: 3 stjörnur af 10 mögulegum
Icelandair: 2,5 stjörnur af 5 mögulegum
Wow Air: 1,5 stjarna af 5 mögulegum
Icelandair: 7,3 stjörnur af 10 mögulegum
Wow Air: 5,7 stjörnur af 10 mögulegum
Ææææ. Ef við ætluðum að vera næs er þetta miðlungs í besta falli. Þetta er Tívolí með lagið „Fallinn með 4.9.”







