I llu heilli dó Wow Air drottni sínum áður en beinar ferðir til Indlands náðu flugi. Ekki þar með sagt að ekki sé þangað komist tiltölulega ódýrt með ýmsum öðrum leiðum. En hvað kosta hlutirnir í þeirri borginni þessa síðustu og verstu?

Svo þér finnst mikið af fólki í Kringlunni á Þorláksmessu. Það brandari miðað við fólksfjöldann á götum Nýju-Delí allan ársins hring.

Það er eitt að ímynda sér að dvöl og hlutir í fjarlægum löndum kosti lítið sem ekkert. Í samanburði við verðlag á Íslandi gegnum tíðina má heita að allir aðrir staðir heims séu ódýrir og á köflum hræbillegir.

Fellur borgin Nýja-Delí undir það?

Það gerir hún sannarlega og það jafnvel þó hún sé dýrust allra borga þessa mikla lands. Það fæst staðfest bæði hjá hagstofu Indlands og ekki síður hjá allnokkrum vefmiðlum sem sérhæfa sig í að mæla kostnað í borgum og ríkjum heims.

Hvernig kemur indverska borgin þá út?

Jú, almennt séð er 79% ódýrara að versla í Nýju-Delí en í Reykjavík þegar þetta er skrifað og tillit tekið til gengis. Til marks um það mætti nefna að hér fær fólk Levi´s gallabuxur almennt á rúmar þrjú til fimm þúsund krónur. Fyrir nýjustu hlaupaskó frá Nike þarf fólk að punga út rétt rúmum fimm þúsund krónum eða svo. Fallegur sumarkjóll í verslun Zöru ætti vart að kosta meira en tvö þúsund krónur. Klæðskerasaumuð jakkaföt á karlinn fást allt niður í 25 þúsund krónur.

En það kannski langsótt að fljúga alla leið til Indlands til að fata sig upp. Nær lagi er að njóta þeirra guðaveiga sem Indverjar eru þekktir fyrir á heimsvísu.

Langi fólk út að borða á alvöru veitingastöðum má gera ráð fyrir að greiða 81% lægra verð fyrir máltíðina en heima á Fróni. Hér þarf auðvitað enginn að leita að indverskum veitingastað því þeir meira og minna allir indverskir 😉

Til að setja þetta í frekara samhengi kostar Big Mac í Nýju-Delí rétt rúmlega þrjú hundruð krónur. Gróflega má segja að ódýr máltíð á veitingahúsi kosti manninn um og yfir 400 krónur. Skyndibiti hjá götusölum, sem hér eru í tonnavís, kostar helmingi minna en það. Langi fólk að splæsa á betri veitingastað og það þríréttað má gera ráð fyrir að missa 2300 krónur úr veskinu per mann og eitthvað áfengt þá meðtalið.

Þegar hægt er að fá fyrirtaks veitingahúsamat fyrir klink og ingenting er tómt rugl að lista upp hvað matur kostar í kjörbúðum hér. Enginn Íslendingur er að fara alla þessa leið til að nískast og kaupa egg og beikon til að elda á íbúðahótelinu. Ef þú finnur hjá þér brýna þörf þá er öllu óhætt; almennt eru matvörur 74 prósent ódýrari í Nýju-Delí en heima.

Enginn þarf á láni að halda til að flakka um borgina. Strætófargjaldið þegar þetta er skrifað kostar 38 krónur. Það samt okur út í eitt þegar þú getur dúllast með leigubíl í klukkustund fyrir sirka hundrað krónur.

Hér finnast margar íbúðir til leigu en óþarfi að eltast við það. Gisting á fínum hótelum eðli máls samkvæmt líka hræbilleg eins og sjá má á bókunarvél okkar hér að neðan.