V íst er Serbía ekki á mörgum listum glanstímarita yfir ákjósanlega áfangastaði. En standi hugur til að heimsækja örlítið framandi slóðir fyrir klink og ingenting án þess að þurfa að þröngva sér gegnum þvögur af öðru ferðafólki er höfuðborg Serbíu alveg hreint ákjósanlegur staður 🙂

Töluvert mikið að sjá á skömmum tíma, heimafólk vingjarnlegt, verðlag hreinn brandari og leitun að öðrum ferðamönnum. Velkomin til Belgrad.
Ein úr ritstjórn þurfti að dvelja lengur í Belgrad, höfuðborg Serbíu, en ætlunin var fyrir skömmu. Það sem átti að vera stutt stopp á flugvellinum vegna tengiflugs endaði í 50 stunda dvöl og þar af 40 stundir í þessari ágætu höfuðborg landsins.
Og viti menn! Borgin barasta mjög skemmtileg. Lítið um drunga og gamla drauga eins og oft vill vera raunin um margar borgir Austur-Evrópu enn þann dag í dag. Engar fimm stjörnur fyrir fegurð en alveg fjórar stjörnur fyrir vingjarnlegheit íbúa, góðar þrjár stjörnur fyrir fína bari og veitingahús og TÍU STJÖRNUR fyrir verðlag.
Hvers vegna tíu stjörnur? Jú, ef þér finnst allt hlægilega ódýrt í Póllandi ættirðu að prófa að kíkja hingað. Verðlag í Serbíu er þetta 20 prósent lægra en í Póllandi sem þó er sannarlega hlægilega ódýr staður fyrir okkur Íslendinga.
Svo þú vilt einhver dæmi?
Ja, hvað með hálfan lítra af innlendum bjór á vinsælum börum í miðbænum fyrir 240 krónur að meðaltali? Hvað með þríréttað á betri veitingastað í miðborginni með víni hússins meðtöldu fyrir rétt rúmar fimm þúsund krónur? Eða leigubíl frá flugvellinum að hóteli í miðbænum fyrir 1.800 krónur íslenskar? Það hljómar ekki spennó hugsar þú. En þú gleymir að það eru 25 kílómetrar frá flugvellinum og inn í borgina. Svona nokkuð á pari við að leigubíll frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur kostaði kringum fjögur þúsund. Sem er auðvitað fjarri lagi.
Að þessu sögðu er auðvitað ekkert komist beinustu leið héðan til Belgrad. Næsta stopp þegar þetta er skrifað er flug til Trieste á Ítalíu eða til Búdapest í Ungverjalandi. Þá eru ennþá eftir tæpir 300 kílómetrar til Belgrad.
En er það ekki þess virði til að njóta stórborgar án þess að standa í röðum öllum stundum til að sjá eða njóta einhvers…







