V issulega fáránlegt á sólríkri unaðseyju í Karíbahafinu að eyða tíma í að fletta upp í símaskrá eyjaskeggja. En það sem þar stendur gæti komið þér verulega á óvart og gert ferðalagið töluvert yndislegra en ella.

Fátt yndislegra en lifa lífinu á gróðusælli karabískri eyju eins og St.Croix

Hvað er svo merkilegt við símaskrána atarna?

Sú staðreynd að svo virðist sem tæpur helmingur heimamanna beri dönsk eftirnöfn. Hér eru reiðinnar býsn af Pedersen, Christiansen, Madsen og Jensen svo ekkert sé minnst á Nielsen, Hansen og Andersen.

Kannski þarf ekki símaskrána til að augnbrúnir rísi á vappinu hér. Hér finnast allnokkur götuheiti á dönsku, danski fáninn sést á stöku stöðum og merkilegast af öllu þá má einstöku sinnum heyra eyjaskeggja tala saman á dönsku!!! Ekki svo að skilja að danska sé töluð hér eða kennd. Svo er ekki. En æði margir rækta tengsl sín það vel að þeir læra málið.

Unaðsstaður? Engin spurning.

Allt ofangreint kemur þó aðeins á óvart þeim sem ekki þekkja sögu St. Croix og yfir 70 annarra karabískra eyja í grenndinni. Allar þessar yndislegu eyjur voru fyrir margt löngu eign Dana og þar með eign okkar Íslendinga því við vorum jú hluti af Danmörku á þessum tíma.

Einhver gæti nú haldið að danskurinn hefði nú haft vit á að halda í slík auðævi og hefði sagan farið öðruvísi er hreint ekkert fráleitt að ímynda sér að eyjurnar væru enn danskar en ekki bandarískar eins og staðan er nú. Málið snérist um hræðslu Bandaríkjamanna við hugsanleg ítök Þjóðverja þegar Fyrri heimsstyrjöldin braust út. Þrátt fyrir opinbert hlutleysi Danmerkur í stríðinu töldu margir sterkar líkur á að Þjóðverjar hertækju Danmörk og þar með allar danskar eignir um heim allan. Kaninn vildi ekki fyrir nokkurn mun fá Þjóðverja í bakgarðinn hjá sér í Karíbahafinu og bauð Dönum að kaupa allar eyjur þeirra fyrir 25 milljónir Bandaríkjadala. Danskir gengu að því.

Það breytti ekki því að töluverður fjöldi Dana héldu til á eyjunum karabísku og það er vegna þeirra áhrifa sem sjá má dönsk áhrif víða hér enn þann dag í dag. Jafnvel hægt að bregða fyrir sig menntaskóladönskunni á stað og stað 🙂