N orðurhluti Frakklands er alla jafna sjaldan á stefnuskrá bleiknefja frá ballarhafi. Þeir vilja flestir meiri sól og hita en finnst þar um slóðir. En ef vera skyldi að einn og einn innlendingur hefði hug á að skoða þann hluta Frakklands er þjóðráð að stoppa dagsstund eða tvær í borginni Amiens. Þó ekki sé nema til að votta þeim manni virðingu er fyrst kom Íslandinu góða á kort alheimsins.

Safn um Jules Verne er ekki stórkostlegt en sannarlega skyldustopp fyrir alla Íslendinga á leið um borgina. Mynd Amiens Metropole

Líklega 100% óumdeilt að ef ekki væri fyrir vísindaskáldsögur hins franska Jules Verne hefði tekið töluvert lengri tíma fyrir Íslandið góða að komast á kortið hvað ferðamennsku snertir. Skáldsaga hans um förina að iðrum jarðar gegnum Snæfellsjökul vakti fyrst athygli á landinu okkar árið 1864 og er enn þann dag í dag að heilla erlenda ferðamenn.

Jules bjó og lifði í Amiens en sú borg, þó góð sé heimsóknar, státar ekki af neinum sérstökum stórkostlegheitum. Hér er þó safn helgað Verne og hans herlegheitum og það ágætt heimsóknar þó enginn missi beint þvag við þá heimsókn. Enn betra er að hér hvílir kauði líka hinsta sinni og eðalhugmynd að votta Verne virðingu með túr þangað og jafnvel leggja blóm á leiði kappans.

Það eru til margar verri hugmyndir en það…