M argir láta sig dreyma um siglingar um heimsins höf um borð í einhverju af þeim glæsilegu skemmtiferðaskipum sem til eru. Sífellt fleiri ferðaskrifstofur hérlendis bjóða sífellt slíkar ferðir enda Íslendingar sem þjóð að eldast hratt og það er einmitt fólk komið yfir miðjan aldur sem mest hefur áhuga á siglingum.

Heillandi að láta dekra og dúlla við sig í skemmtisiglingum en kostnaðurinn getur verið ívið hærri en fólk gerir sér grein fyrir

Heillandi að láta dekra og dúlla við sig í skemmtisiglingum en kostnaðurinn getur verið ívið hærri en fólk gerir sér grein fyrir

Sé fólk fyrirhyggjusamt er hægt að verða sér úti um eðalfínar ferðir með glæsilegustu skipunum á góðu verði og oft mun betra verði en ferðaskrifstofurnar hérlendis bjóða upp á. Það er þó aðeins sniðug hugmynd sé fólk óhrætt við að bjarga sér á eigin spýtur.

Það vill þó brenna við hjá þeim nokkrum sem græja sínar ferðir sjálfir að það gleymist að mörg skipafélögin búast við að gestir þeirra greiði þjórfé fyrir allt og ekkert.

Sömuleiðis eru langflestar skoðunarferðir frá skipi aukakostnaður og sú upphæð getur skipt tugum og jafnvel hundruð þúsunda ef alls staðar er farið í land á góðri siglingu. Upp og niður er hvort þessi aukakostaður er tiltekinn sérstaklega við bókun og getur komið fólki á óvart.

Sem dæmi má nefna að kostnaður pars eða hjóna við að taka allar skoðunarferðir í fimmtán daga siglingu um Karíbahafið er aldrei lægri en hundrað þúsund krónur samtals. Sá kostnaður er algjör viðbót við siglinguna sjálfa.

Skipafélögin eru flest afar dugleg að taka aukalega þjórfé fyrir minnstu þjónustu um borð. Bjór- eða vínglasið kostar kannski ekki svo mikið en ofan á uppgefið verðið bætist yfirleitt við 15 prósenta þjórfé. Það er fljótt að telja fái fólk sér vel í tána eins og vill nú oftar en ekki verða í slíkum siglingum.

Hér að neðan má sjá gróflega hvað helstu skipafélög fara fram á í þjórfé samkvæmt upplýsingum á vefum þeirra í júlí 2019. Hluti þessa kostnaðar er stundum, en ekki alltaf, innifalinn í pökkum ferðaskrifstofanna. Um að gera að ganga úr skugga um það fyrirfram og eiga extra inni á kortinu.

♥  Carnival Cruise Lines >>> Skylda er að gefa þjórfé og er upphæðin 1.400 krónur á dag á mann plús 15 prósenta þjórfé ofan á allan barkostnað.

♥  Celebrity Cruises >>> Aftur er þjórfé skylda hér og nemur 1.600 krónur á dag á mann. Sömuleiðis er 15 prósenta þjórfjárþóknun ofan á alla drykki.

♥  Costa Cruises >>> Þjórfé skyldukostnaður en misjafn eftir lengd ferðar. Rúmar þúsund krónur þó algengt á mann hvern dag plús fimmtán prósent aukalega ofan á drykki og allt dekur.

♥  Cunard >>> 1.550 krónu þjórfé á alla farþega daglega. Auk þess 15 prósent þjórfé ofan á drykki og dekur.

♥  Fred Olsen >>> 900 krónu þjórfé á kjaft daglega en hér greiðist ekki sérstakt þjórfé vegna drykkja eða dúllerís.

♥  MSC >>> Litlar 2.100 krónur á mann í þjórfé fyrir hvern dag ferðar. Auðvitað líka 15 prósent ofan á drykki.

♥  P&O >>> Hér eru græðgin ekki að drepa menn. 650 króna þjórfé á mann á dag en ekkert svoleiðis bull á barnum.

♥  Princess Cruises >>> 1.600 krónur á mann daglega og viti menn, líka 15 prósenta þjórfé ofan á drykki og dekrið.

♥  Royal Caribbean >>> 1.650 króna þjórfé á hvern farþega daglega. Plús tíu til 15 prósent ofan á alla drykki.

* Miðað við miðgengi krónu 12. janúar 2020