Pistlar

Bylting hjá Iceland Express

  09/12/2011No Comments

Hlutirnir hafa aldeilis lagast til hins betra hjá Iceland Express að undanförnu ef marka má umsögn eins viðskiptavinar félagsins sem lenti í ógöngum sama dag og flugfélagið Astreus fór á hausinn.

Það er ekki á hverjum degi sem viðskiptavinur tekur upp hanskann opinberlega fyrir Iceland Express

Skrifar Guðjón Petersen, fyrrum formaður Almannavarna og sjálfskipaður ævintýramaður á eftirlaunum, um afar góða reynslu sína af ferðum með Iceland Express á blogg sitt en Guðjón er einn þeirra sem reynt hafa þjónustu ferðasalans eftir að skipta var um flugfélag fyrir skömmu.

Við vorum á Tenerife hjónin þegar Astareus fór á hausinn daginn áður en við áttum að fara heim. Þurftu sum okkar að fara með áætlunarflugi í gegnum Gatwick þar sem við þurftum að gista í eina nótt, þar sem við fengum gistingu, kvöldverð og morgunverð á kostnað Iceland Express.

Flugum við svo með nýja Tékkneska flugfélaginu sem nú hefur tekið yfir flugið fyrir Iceland Express með Airbus 320 vélum sem er bylting í gæðum frá gömlu Boeing druslunum sem þeir notuðu áður. Frábær þjónusta um borð.

Rúsínan í pylsuendanum er svo að við fengum í pósti gjafabréf frá Iceland Express til hvaða áfangastaðar sem þeir fljúga til í Evrópu, sem gildir í heilt ár.

Hættum að skammast út í Iceland Express, þeir eru virkilega að sýna bætta ímynd. Við verðum að hafa samkeppnina.