F rægasta minnismerki Frakklands og eitt það frægasta í veröldinni er Eiffel turninn í París og þangað koma tugir milljóna ár hvert til að berja hann augum. En það er eitt og annað sem kemur á óvart varðandi turninn.

Ansi merkilegur þessi Eiffel turn Frakka

Ansi merkilegur þessi Eiffel turn Frakka

Hann skreppur saman  Opinber hæð Eiffel er 299.923 metrar en það er aðeins á sumrin. Á veturna skreppur stálið saman vegna kulda og er hann þá fimmtán sentimetrum styttri en ella.

Málningin er blaut  Sums staðar. Átján mánuði tekur að mála turninn og það þarf að gera á þriggja ára fresti. 60 tonn af málningu þarf til.

Auglýsingar bannaðar Þó engar sjáist auglýsingar á turninum var það ekki alltaf svo. Lengi vel auglýsti Citröen á þremur hliðum hans og hernámslið Þjóðverja var ekki lengi að hengja kennimerki sín á hann í Seinni heimsstyrjöldinni.

Vinsæll og veit af því  Sjö milljónir manna fara árlega upp í turninn sem eru helmingi fleiri en skoða New York af toppi Empire State byggingarinnar.

Peningavél  Viðskiptavelta turnsins, veitingastaðanna tveggja sem þar eru og skautasvells sem sett er upp af og til nam tæpum sextán milljörðum króna árið 2015.