Svo virðist sem forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair vilji eingöngu svara þægilegum spurningum forvitinna og taki það sem kallað er „Geir Haarde“ á þær óþægilegu. Í það minnsta fær Fararheill engin viðbrögð við nokkrum spurningum er varða tilkynningu um enn frekari vöxt félagsins á næsta ári.

Eins og fréttaþyrstum er kunnugt tilkynnti flugfélagið í gær um enn frekari sókn á erlenda markaði á næsta ári og strax í byrjun næsta sumars verða í boði þrír nýir áfangastaðir. Þeir eru Vancouver og Edmonton í Kanada og Genf í Sviss.

Meira úrval ferða er alveg fyrirtak og aldrei skal gera lítið úr slíku. En spurningar Fararheill snérust aðallega um tvennt. Annars vegar hvaða þrjár vélar flugfélagið hyggst nota til flugsins en eins og Fararheill hefur greint frá bendir ýmislegt til að vélafloti flugfélagsins sé einn sá allra elsti í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Með tilliti til að flughræðsla þjáir marga þykir okkur aldur véla skipta máli enda gamalt aldrei jafn gott og nýtt.

Hins vegar lék okkur hugur að vita hvaða áfangastaðir falla út því í umræddri fréttatilkynningu segir „mun Icelandair
fjölga ferðum næsta sumar til flestra núverandi áfangastaða.“ Það munu sem sagt einhverjir áfangastaðir Icelandair detta út. Stóra spurningin er hverjir.

Á vef Icelandair hafa þegar verið birt verð á ferðum næsta sumar til Vancouver og eins og sjá má að neðan kostar það ferðalag hundrað þúsund krónur plús á manninn miðað við allra lægstu verð tæpt ár fram í tímann. Það er mjög frambærilegt verð miðað við aðra flugkosti frá Bretlandi sem dæmi en varla til þess fallið að Íslendingar hoppi hæð sína.

Flugfargjöld Icelandair til Vancouver í júní á næsta ári

Flugfargjöld Icelandair til Vancouver í júní á næsta ári