Ö ll eigum við ferðasögur sem bragð er að og sögurnar jafn misjafnar og fólkið er margt. Fararheill tók hús á nokkrum skemmtilegum einstaklingum með ferðabakteríuna í blóðinu og fékk þá til að deila örlítið.
Unnur Björg Stefánsdóttir er grunnskólakennari að mennt og hefur ferðast víða.
Fararheill: Dásamlegasta land sem þú hefur heimsótt og hvers vegna?
Unnur Björg: Mér finnst skemmtilegast að fara þangað sem er heitt og gott veður. Ítalía og Spánn standa þar upp úr. Það er nú eiginlega alltaf gaman að ferðast, sama hvert það er og komast aðeins burt af skerinu.
Fararheill: Hver er besta verslunarborgin til heimsóknar og hvers vegna?
Unnur Björg: Ég verð að viðurkenna að ég verslaði aldrei neitt að ráði á ferðalögum áður en ég eignaðist börn. Eftir það hef ég verið hrifin af Glasgow. Þangað er stutt að fara og þar eru allar helstu búðirnar og veitingastaðirnir á sama punktinum. Þar er líka hægt að gera góð kaup og verðalagið hagstætt, mun ódýrara heldur en t.d í London.
Fararheill: Hver er versta lífsreynslan erlendis?
Unnur Björg: Sennilega var mín versta lífsreynsla á ferðalagi þegar ég var aupair í U.S.A. og skellti mér í dagsferð með vinkonu minni yfir til Mexíkó.. Eftir skemmtilegan dag þar héldum við aftur að landamærum U.S.A þar sem við lentum í svakalegri biðröð. Þar var fullt af fólki frá Mexíkó sem gerði sér vonir um að komast yfir landamærin í betra líf. Þegar röðin kom loksins að okkur kom í ljós að ég hafði gleymt að taka með mér vísamiða sem átti að vera inni í passanum mínum. Mér var skipað inn á einhverja skrifstofu þar sem ég var látin bíða með fullt af grátandi fólki, Mexíkó búum, sem ekki höfðu komist yfir. Ég var farin að sjá það fyrir mér að vera föst í Mexíkó að eilífu. Eitthvað óútskýranlegt gerðist þó þegar röðin kom að mér og ég fór að tala við þessa grimmilegu menn. Eftir smá smjaður og uppflettingar í tölvunni var málið leyst og ég fékk að fara yfir til U.S.A. Ég fæ enn hroll þegar ég hugsa um Mexíkó…
Fararheill: Hvaða erlendu staðir hafa komið þér mest á óvart?
Unnur Björg: Kaupmannahöfn hefur komið mér mest á óvart. Það er ekkert svo langt síðan ég kom þangað fyrst en er búin að fara nokkrar ferðir síðan. Ég hélt alltaf að Kaupmannahöfn væri svo óspennandi og langaði ekkert þangað. Þegar ég lét loksins verða af því að skella mér var ekki aftur snúið og mér finnst alltaf jafn gaman að koma þangað núna.
Fararheill: Eitt það mikilvægasta að hafa í huga á ferðalögum er…?
Unnur Björg: Ef verið er að ferðast með börn þarf að muna að hafa nóg að gera fyrir þau í fluginu, annars getur flugferðin orðið algjör martröð.





