S é Holland þekkt fyrir eitthvað annað en túlípana, Önnu Frank, tréklossa og hjólreiðamaníu landsmanna þá er það vafalítið sú mýta að landið sé flatara en pönnukaka. Það ekki alls kostar rétt. Vaalserberg heitir fjallið sem blæs þeirri mýtu út í hafsauga. Það er Everestfjall Hollendinga.

Hæsti punktur Hollands og vitaskuld þessi fíni útsýnisturn. Mynd TurismeHolland
Fjall kannski ekki alveg sanngjörn lýsing á fyrirbærinu því þetta er auðvitað meira eins og lítil hæð. Hæðin hvorki meira né minna en 322 metra yfir sjávarmáli. Of lítil til að það borgi sig að planta fána á toppnum og engin þörf á sérstökum hlífðarfatnaði til göngunnar. Ferðin upp tekur svo mikið sem fimm mínútur fótgangandi í hægðum.
Þótt Vaalserberg sé út af fyrir sig kannski ekki sérferðar virði, enda staðsett eins sunnarlega í Hollandi og hægt er, þá er annað og meira hér sem kryddað getur túrinn. Hæðin er nefninlega aðeins nokkrum metrum frá því sem kallast drielandenpunt sem gæti útleggst sem þriggja landa punktur. Það er hér sem landamæri Holland, Belgíu og Þýskalands mætast. Einn örfárra staða heims þar sem þvælast má um þrjú mismunandi lönd á þremur sekúndum sléttum. Eitthvað til að monta sig af á samfélagsmiðlum fyrir þá sem slíkt elska.
Hollendingar mega reyndar eiga að þeir hafa húmor fyrir sjálfum sér og flötu landi sínu. Það er eina hugsanlega ástæðan fyrir að hér er þessi fíni útsýnisturn og sá reyndar töluvert hærri en hæðin sjálf. Þaðan má vissulega sjá ýmislegt bera fyrir auga í þremur mismunandi löndum.




