T il eru þeir sem kjósa að ferðast einir um heimsins höf og lönd og njóta einskis betur en treysta algjörlega á sjálfa sig. En töluvert margir sem ferðast vilja láta það stoppa sig að enginn getur eða vill ferðast með þeim.
Þetta er stærra vandamál en nokkru sinni samkvæmt erlendum gögnum því sífellt fleiri kjósa að vera einhleypir fram eftir aldri. Þá getur orðið vesen að fá giftar vinkonurnar eða vinina til að bakpokast um Evrópu í mánuð, skoða markaði í Zanzibar eða golfa í Indónesíu.
Þó ekki alveg vonlaust ef fólk er á annað borð áhugasamt um að kynnast nýju fólki. Allnokkrir vefir sérhæfa sig einmitt í að koma saman fólki sem hyggur á ferðir á svipaða staði á heimskringlunni og vantar félagsskap, göngufélaga eða bara góð ráð.
Slíkir vefir eru reyndar ekki alveg nýir af nálinni og hér áður fyrr voru margir þeirra varasamir. Vefir dagsins í dag hins vegar eru betri að því leytinu til að þar eru ekki nánast eingöngu miðaldra karlmenn sem langar í ferðir með yngri meyjum heldur þvert á móti.
Fyrir það fyrsta er sjálfsagt að auglýsa á samskiptamiðlum á borð við twitter, facebook, couchsurfing og jafnvel á flickr. Gangi það ekki er ráð að prófa vefi á borð við Travelmassive, TravelBuddies.com eða Reddit. Allir koma saman fólki sem er að þvælast um svipaða staði í svipuðum löndum og það endurgjaldslaust.
Fjölmargir aðrir vefir bjóða sams konar þjónustu en í þeim tilfellum þarf að skrá sig og greiða gjald fyrir. Engin þörf er á að punga út fyrir félagsskap á spennandi slóðum erlendis.





