Flugfélag fólksins, Wow móment, betra verð, nýrri vélar, brandarar um borð og svo framvegis og svo framvegis. Enginn skortur er á kynningum Wow Air á öllu þessu skemmtilega en ekki einn einasti stafur er settur neins staðar til að vekja athygli á að farangursgjöld Wow hafa snarhækkað að undanförnu.
Ekki kannski alveg í takt við „flugfélag fólksins“ að fela miklar þjónustuhækkanir fyrir sama fólki en staðreyndin er að ein einasta taska upp að 20 kílóum kostar nú 3.495 krónur að taka með hvern einasta legg. Það er tæplega sautján prósenta hækkun frá því sem var.Þannig þarf að greiða í ofanálag við fargjald og bókunargjald, sem einnig hefur hækkað úr 900 krónum í 995, fyrir eina tösku fram og aftur heilar 6.990 krónur.
Þetta verð gildir þó aðeins ef taskan er bókuð samhliða fluginu á netinu. Búi einhver svo illa að nota ekki kreditkort, sem fólk er gjarnan hvatt til að nota ekki vilji það spara peninga, þarf að punga út mun hærra fyrir töskuræsknið eða 4.995 krónur.
Og almættið hjálpi þeim sem gleyma að greiða fyrir töskuna fyrr en komið er út að hliði í Leifsstöð. Þeir einstaklingar verða að hafa 5.995 krónur handbærar eða hærri upphæð en sennilega var greitt fyrir töskuna sjálfa.
Önnur aukagjöld Wow hafa einnig hækkað umtalsvert og svo um munar. Ætli par eða tveir vinir að golfa í Alicante eina viku eða svo og grípa með sér golfpokann í þokkabót við tösku er kostnaður á mann með eina tösku og eitt golfsett orðinn 14.980 krónur á mann eða 29.960 samtals á tvo.
Hafa skal kyrfilega í huga að farangursgjald var tekið fyrst upp fyrir tíu mánuðum síðan af hálfu Wow Air. Fram að þeim tíma gat viðskiptavinur tekið með sér farangur að 20 kílóum innifalið í verði flugmiðans. Talið frá þeim tíma nemur farangursgjaldahækkun Wow Air tugþúsundum prósenta








