
Líklega óspennandi að klífa Mount Disappointment í Ástralíu. Skjáskot
Það er, með öðrum orðum, eiginlega vitavonlaust að „skoða” Ástralíu nema rúnta þar um stanslaust um 30 ára skeið eða svo og stoppa þá aðeins til að pissa og fá snöggt í gogginn.
Vinahjón eins ritstjórnarmeðlims eyddu rétt rúmum mánuði í Ástralíu áður en Kófið fór að gera usla og notuðu bílaleigubíl óspart til að skoða sig um. Þau náðu að skoða Sidney og nágrenni, höfuðborgina Canberra og nágrenni og Melbourne og nágrenni áður en mánuðurinn var úti. Allir þrír staðir á suðausturhorni landsins. Svona svipað og ætla að skoða Íslandið góða en eyða tímanum bara í Reykjavík.
En hjónakornin höfðu afar gaman af þvælingnum og ekki hvað síst sökum þess hve margir bæir og héruð hétu hreint fáránlegum nöfnum. Þau komu heim þess fullviss að hvergi í heimi sé til betri aulahúmor en í Áströlum. Bæjar- og staðarnöfnin bera þess mörg vitni.
Eða hvernig ætli sé best að eyða tímanum í Blackbutt? Wagga Wagga er auðvitað klassík. Klifur upp Mount Blowhard ætti vart að gleymast. Ástralir eiga sína eigin Síberíu og sinn eigin Norðurpól, North Pole. Báðir síðastnefndu staðirnir örskammt frá heitasta stað landsins. Bullshit Hill er víst sæmilegt stopp og enginn lætur hjá líða að rúnta um Useless Loop. Allir íbúar við Nowhere Else Road ættu að muna hvar þeir eiga heima eftir langa drykkju og okkur skilst að sólböð séu mjög móðins á Cockburn Cape. Ferðamálaráð landsins mælir með skoðun á hellunum Well, It Wasn´t Here Last Year og Most Remarkable Blowhole. Mount Surprise gæti komið ferðalöngum á óvart og útsýnið frá Pleasure Point er víst heimsklassa. Jerking Creek er hins vegar ekki á lista ferðamálaráðs og þaðan af síður Officer´s Bottom.
Og svo framvegis og svo framvegis 🙂
Víst eru mörg heiti í landinu á nippinu að vera eðlileg og mörg vissulega börn síns tíma. En fjandakornið hvað er gaman að skrölta um land þar sem næsta staðar- eða bæjarnafn fær þig til að brosa allan hringinn. Það verður alltaf skemmtilegur rúntur og okkur vitandi eina land heims þar sem nöfn á hinum og þessum stöðunum er bara brandari.




