Með ört vaxandi fjölda ferðafólks sem vill hreyfiferðir um fagrar slóðir í erlendum löndum fremur en hanga á einum stað hafa vinsældir slíkra leiða tekið stökk upp á við. Þar sem áður fyrr þvældist bara um fólk sem taldist pínulítið skrýtið eða inní í sér er nú athvarf ýmissa sem vilja raunverulega njóta náttúru og menningar og það á sínum eigin hraða.
Með það í huga gæti verið óvitlaust fyrir áhugasama að kynna sér Straβe der Romanik eða Rómversku leiðina á hinu ylhýra. Það er samheiti tveggja „hringvega” í Saxony-Anhalt héraðinu en það hérað eitt og sér státar af fleiri heillegum og kostulegum minjum í rómverskum stíl en flest önnur lönd af Ítalíu sjálfri frátalinni.
Á þessari 1200 kílómetra leið má finna 88 magnaðar byggingar í þessum forna stíl og þær margar hverjar á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem arfur mannkyns. Flest þau mannvirki reist frá 10. til 13. öld. Sé það ekki nóg fyrir þig er krökkt af þessum yndislegu litlu þýsku bæjum og þorpum á leiðinni og töluverð náttúrufegurð í og með.
Að hefja förina
Flestir hefja ferð sína um rómversku leiðina í borginni Magdeburg þar sem Alfreð okkar Gíslason gerði lengi garðinn frægan. Borgin sú er gróflega í miðju norður- og suðurhlutans en sé tími af skornum skammti er góð hugmynd að taka aðra hvora leiðina og láta við sitja þangað til næst. Það tekur jú tímann sinn að keyra 1200 kílómetra með stoppum á tíu mínútna fresti og göngutúr verður aldrei sérstaklega skammvinnur heldur. Fróðir tala um að fjórar vikur sé lágmarkið ætli fólk að fylgja gönguleiðum hér um slóðir.




